Leikarahópur þáttanna Stranger Things hefur fengið spennandi viðbót. Nýr karakter er mættur í litla bæinn Hawkins.
Leikarahópur þáttanna Stranger Things hefur fengið spennandi viðbót. Nýr karakter er mættur í litla bæinn Hawkins. Netflix tilkynnti það að dóttir Ethan Hawke og Umu Thurman hún Maya Hawke hefði verið ráðin til að leika Robin sem leiðist í starfinu sínu og leitar sér að spennu en fær meira en spennu þegar hún kemst að dimmu leyndarmáli Hawkins. Maya Hawke lék nýverið í endurgerð af Little Women sem BBC framleiddi. Búist er við að tökur á þáttunum hefjist í vor og að sería númer þrjú verði sýnd einhverntímann 2019.