Davide Astori
Davide Astori
Staðfest var í gær að ítalski knattspyrnumaðurinn Davide Astori hefði fengið hjartastopp í svefni þegar hann lést aðfaranótt sunnudags, 31 árs að aldri. Hans hefur verið minnst með margvíslegum hætti, hjá félagi hans Fiorentina og víðar.

Fiorentina tilkynnti að samningur Astori við félagið hefði verið framlengdur um ótiltekinn tíma og eiginkona hans og tveggja ára dóttir fengju launin. Astori var fyrirliði liðsins en þetta var hans þriðja tímabil með félaginu.

Bæði Fiorentina og Cagliari, sem hann lék með í sex ár, hafa tekið treyju númer 13 úr umferð. Astori var jafnan með númerið 13 á bakinu og enginn mun bera það framar, hjá hvorugu liðinu.

Astori verður jarðsettur í fyrramálið í Flórens. Hans var minnst með mínútu þögn fyrir leiki Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld og það sama verður gert í kvöld þegar m.a. nokkrir fyrrverandi samherjar hans í ítalska landsliðinu leika með Juventus gegn Tottenham. vs@mbl.is