Tvö vinnuslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um síðustu helgi. Annað þeirra vildi þannig til að maður féll aftur fyrir sig úr stiga, sem var utan á vinnulyftu á Keflavíkurflugvelli, og lenti á flughlaðinu sem er steypt.

Tvö vinnuslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um síðustu helgi. Annað þeirra vildi þannig til að maður féll aftur fyrir sig úr stiga, sem var utan á vinnulyftu á Keflavíkurflugvelli, og lenti á flughlaðinu sem er steypt. Hann var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi og Vinnueftirlitinu var gert viðvart um atvikið.

Í hinu tilvikinu var maður að fara út í bát sem lá við bryggju í Grindavíkurhöfn en skrikaði fótur og datt á bryggjuna.

Hann var fluttur á Landspítala í Fossvogi og reyndist vera með brotna mjaðmakúlu.