Jakob Örn Sigurðarson
Jakob Örn Sigurðarson
Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson átti fínan leik með Borås í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld þegar liðið tapaði fyrir Umeå í framlengdum leik á heimavelli, 97:91.

Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson átti fínan leik með Borås í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöld þegar liðið tapaði fyrir Umeå í framlengdum leik á heimavelli, 97:91. Jakob skoraði 18 stig, fimm þeirra í framlengingunni, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar en hann lék í rúmlega 33 mínútur af 45.

Jakob og félagar fóru illa að ráði sínu þegar þeir misstu leikinn niður í jafntefli í lok venjulegs leiktíma. Þeir eru í þriðja sæti deildarinnar með 26 stig eftir 24 leiki en Luleå og Norrköping eru langefst með 34 stig. gummih@mbl.is