Óárennilegir Félagarnir í svartmálmssveitinni Rebirth of Nefast á síðustu Oration-hátíð, þeirri sem haldin var í fyrra. Hljómsveitin leikur einnig í ár.
Óárennilegir Félagarnir í svartmálmssveitinni Rebirth of Nefast á síðustu Oration-hátíð, þeirri sem haldin var í fyrra. Hljómsveitin leikur einnig í ár. — Ljósmynd/Woda i Pustka
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Alþjóðlega svartmálmshátíðin Oration MMXVIII verður haldin á skemmtistaðnum Húrra 7. og 8. mars og 9. mars í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi og munu 19 hljómsveitir, innlendar sem erlendar, koma fram.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Alþjóðlega svartmálmshátíðin Oration MMXVIII verður haldin á skemmtistaðnum Húrra 7. og 8. mars og 9. mars í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi og munu 19 hljómsveitir, innlendar sem erlendar, koma fram. Hátíðin hefur verið haldin síðustu tvö ár og vex með ári hverju hvað varðar fjölda flytjenda og gesta.

Þessi sérstaka tegund þungarokks, svartmálmur, hefur notið sívaxandi vinsælda hér á landi hin síðustu ár og hafa margar íslenskar svartmálmssveitir sprottið fram og notið alþjóðlegrar athygli og hylli, eins og fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar, Stephen Lockhart og Gunnhildi Eddu Guðmundsdóttur sem eru kærustupar og svartmálmsunnendur. Þau segja að tónlistarhátíðin gefi svartmálmssveitum og fylgjendum þeirra vettvang í Reykjavík til að koma, sjá og njóta þess nýjasta sem svartmálmurinn hafi upp á að bjóða hér á landi.

Níu erlendar hljómsveitir leika á hátíðinni: Abyssal frá Bretlandi, Aluk Todolo frá Frakklandi, hollenska sveitin Asagraum, Devouring Star frá Finnlandi, Inferno frá Tékklandi, Sortilegia frá Kanada, íslensk-írska sveitin Slidhr, norsku hljómsveitirnar Vemod og Virus. Hinar íslensku eru svo Abominor, Almyrkvi, Auðn, Mannveira, Misþyrming, Naðra, NYIÞ, Rebirth of Nefast, Sinmara, Slidhr og Svartidauði. Hátíðin er styrkt af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði, ÚTÓN og sendiráðum Kanada og Noregs á Íslandi.

Framleiðir og leikur

Stephen er framkvæmdastjóri hátíðarinnar en hann er líka hljóðvinnslumaður og rekur hljóðstúdíóið Studio Emissarry í Reykjavík. Stephen hefur átt sinn þátt í vaxandi vinsældum íslensks svartmálms á erlendri grundu því hann hefur tekið upp tónlist margra íslenskra svartmálmssveita, m.a. Svartadauða, Sinmara og Auðnar, allt frá árinu 2008. Hann segir að smám saman hafi hljómsveitunum fjölgað sem tóku upp hjá honum en hann hafi líka sjálfur leikið í svartmálmssveitum, Sinmara, Slidhr og Rebirth of Nerfast en sú síðastnefnda er í raun sólóverkefni hans. „Þannig að ég hef framleitt ansi mikið af svartmálmstónlistinni sem komið hefur frá Íslandi á síðustu árum,“ segir Stephen.

Margar málmtegundir

Áður en lengra er haldið er kannski betra að útskýra fyrir þeim lesendum sem ekki vita hvað svartmálmur er, „black metal“ á ensku, og hver munurinn er á þeirri tónlist og „metal“ þungarokki, málmtónlist. Stephen segir að jafnan sé meiri áhersla lögð á drungalegt andrúmsloft í svartmálmi en málmi. „Dauðamálmur er til dæmis með meiri áherslu á hraða eða þyngd en svartmálmur getur verið hvort tveggja hraður eða þungur en líka hægur. Oftast er áherslan – og mér finnst að hún ætti að vera þar – á andrúmsloft frekar en að spila eins hratt og maður getur eða á þunga,“ útskýrir Stephen.

– Maður þarf að þekkja vel til málmsins til að heyra muninn á milli greina hans, ekki satt?

„Jú. Ef þú hlustar ekkert á málm heyrirðu kannski ekki muninn á Metallicu og svartmálmsbandi, fólk heyrir þá líklega bara hávaða,“ segir Stephen kíminn en lesendum til upplýsingar flokkast Metallica sem þrasssveit en þrass er ein af greinum málmsins.

Stephen segir í framhaldi af þessu að undirgreinar málmsins eða tegundir séu margar og ekki fyrir hvern sem er að átta sig á þeim öllum. „Það eru t.d. margir sem hlusta bara á svartmálm og svo margir sem hlusta bara á ákveðna tegund svartmálms,“ segir hann. Það séu því undirflokkar í flokkunum eða undirgreinar í greinunum.

Frægð í ólíkum kimum

„Í fyrra var mikil þröng á þingi,“ segir Stephen sposkur, spurður út í aðsóknina að hátíðinni. Hún var, með öðrum orðum, einkar góð og erlendir gestir í meirihluta enda Íslendingar lengi að taka við sér þegar kemur að miðakaupum á tónlistarhátíðir, eins og þekkt er.

– Eru einhverjar sveitir þekktari en aðrar af þeim erlendu sem koma fram á hátíðinni í ár?

„Já, Virus er býsna þekkt og hin síðustu ár Vermod en eins og ég segi þá er frægðin á ólíkum stigum í heimi svartmálmsins. Þetta er mjög afmarkaður tónlistarkimi,“ svarar Stephen og bendir á að plötusala sé til dæmis ekki mælikvarði á vinsældir svartmálmssveita. Þær geti notið mikilla vinsælda í ákveðnum kreðsum þótt fáir utan þeirra hafi heyrt á þær minnst.

Stephen er að lokum spurður hvort hátíðin sé ekki kjörið tækifæri til að kynna sér svartmálminn og svarar hann því til að vissulega sé hún það. Fólk megi ekki láta drungalegt útlit og framkomu flytjenda hræða sig eða blekkja. Stemningin á tónleikum svartmálmssveitar sé líkari þeirri sem er á klassískum tónleikum en reifi (e. „rave“).

Miðasala á Oration MMXVIII fer fram á tix.is.