Brotist var inn í hesthús á Suðurnesjum um helgina og var þar talsverðu magni af reiðtygjum stolið, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Meðal þess sem var stolið voru sjö hnakkar, mörg beisli, reiðhjálmar og ýmis annar búnaður til hestamennsku.
Í tilkynningunni segir að lögreglan á Suðurnesjum rannsaki nú málið.