Þvingun og innkast. S-AV
Norður | |
♠G1094 | |
♥K32 | |
♦9863 | |
♣G2 |
Vestur | Austur |
♠KD73 | ♠82 |
♥10 | ♥D987654 |
♦ÁKDG102 | ♦74 |
♣D10 | ♣74 |
Suður | |
♠Á65 | |
♥ÁG | |
♦5 | |
♣ÁK98653 |
Suður spilar 5♣.
Kristján Blöndal vakti á sterku laufi í suður, Ólöf Thorarensen kom inn á 1♦, Hjördís Sigurjónsdóttir doblaði til að sýna 5-7 punkta og Gunnar Björn Helgason í austur sagði pass. Látlaus fyrsti hringur.
Spilið er frá Íslandsmótinu í paratvímenningi og gekk á ýmsu. En framhaldið við þetta borð var blátt áfram: Kristján sagði 2♣ á sjölitinn og Ólöf 3♦ – pass og pass og 5♣ hjá Kristjáni. Allir pass, ♦Á út og hjarta í öðrum slag.
Vandi sagnhafa er spaðaliturinn þar sem aðeins má gefa einn slag. Kristjáni þótti líklegt að hjónin væru í vestur og ákvað spila upp á strípiþvingun og innkast. Í lokastöðunni átti blindur ♠G109, ♥K og tígulhund, en heima var Kristján með ♠Á65, ♥G og eitt tromp.
Sviðið var nú sett til að spila hjarta á kónginn. Ólöf var komin niður á tvo tígla og ♠KD7 og henti auðvitað tígli. Kristján trompaði þá tígul og spilaði litlum spaða undan ásnum þriðja.