Matgæðingur Áslaug á góðum degi við eldamennsku úti í Viðey.
Matgæðingur Áslaug á góðum degi við eldamennsku úti í Viðey. — Ljósmynd/Aran Goyoaga
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Landnámshæna mun aðstoða við sýningu sem opnar í dag, Allir fuglar úr eggi skríða. Áslaug Snorradóttir segir egg vera upphaf lífs og full af táknum. „Í egginu býr alheimurinn, andstæðurnar jing og jang, himinn og móðir jörð.

Landnámshæna mun aðstoða við sýningu sem opnar í dag, Allir fuglar úr eggi skríða. Áslaug Snorradóttir segir egg vera upphaf lífs og full af táknum. „Í egginu býr alheimurinn, andstæðurnar jing og jang, himinn og móðir jörð. Egg eru æðislega spennandi og þau örva sköpunargleðina.“ Hún ætlar að bjóða upp á ætilegan eggjagjörning í dag á opnun sýningarinnar.

Kristín Heiða Kristinsdóttir

khk@mbl.is

Þetta verður geggjuð eggjahátíð. Allir munu fara með egg í maga heim af þessari opnun í dag,“ segir Áslaug Snorradóttir, matgæðingur og ljósmyndari, en hún ætlar að bjóða upp á ætilegan eggjagjörning á opnun sýningarinnar Allir fuglar úr eggi skríða, sem er óður til eggja. Á sýningunni sem er hluti af Hönnunarmars og opnar í dag fimmtudag, verður Birna Geirfinnsdóttir með innsetningu þar sem hún lætur mætast teikningar Ránar Flygenring og Benedikts Gröndal af fuglum og eggjum. Omnom ætlar að bjóða upp á súkkulaðiegg, Reykjavík Letterpress kynnir servéttur unnar út frá eggjaþemanu, Bjarni Sigurðsson leirlistamaður frumsýnir nýja eggjabikara og fær landnámshænu til liðs við sig. Einnig verður opnað eggjabókasafn á vegum bókaútgáfunnar Angústúru. Meðan á sýningunni stendur verður opin flórgoðagrímusmiðja fyrir börn á öllum aldri.

„Þegar ég sá bókina þeirra Hjörleifs Hjartarsonar og Ránar Flygenring, Fuglar, sem kom út um síðustu jól, þá fór ég á flug í gleðivímu. Ég espaðist upp og vildi búa til eggjasýningu heima hjá mér. Ég ætlaði mér að taka á móti fólki heima með eggjum og helst hafa á veggjunum veggfóður úr síðum bókarinnar. En svo þróaðist hugmyndin og nú verður hún framkvæmd í Gröndalshúsi með öllu þessu frábæra fólki sem kemur að sýningunni. Þegar ég fór að hugsa um þau 270 egg sem hæna verpir á einu ári, þá kom Júlli með Þykkvabæjareggin upp í huga mér, af því mér finnst svo gaman að heimsækja hann og fá egg hjá honum. Júlli, eða Júlíus Már Baldursson, er með landnámshænur og hefur líka boðið fólki að ættleiða hænur hjá sér, þá borgar það fóðurkostnað hænunnar en fær eggin úr henni í staðinn. Ég spurði sjálfa mig: Hvernig getum við heiðrað landnámshænuna á þessari sýningu? Jú, ég ætla að nota landnámshænuegg í eggjagjörning minn og bjóða fólki að gæða sér á. Fyrirtækið Mekka ætlar að gera kokteil fyrir opnunargesti, whyskí með eggjahvítu, en sá drykkur ku passa afskaplega vel með eggjunum mínum. Þetta verður kokteill með krýndu eggi.“

Eggjahátíð heldur áfram

Áslaug segist hafa notað egg mikið í sinni matreiðslu í gegnum tíðina, og fabúlerað heilmikið í tengslum við það. „Egg eru svo mikil stúdía, þau eru upphaf lífs og full af táknum. Í egginu býr alheimurinn, andstæðurnar jing og jang, himinn og móðir jörð. Þetta er svo merkilegt fyrirbæri eggið, það hefur verið túlkað á hinn ólíkasta hátt í myndlist og öðrum greinum. Mér finnst egg æðislega spennandi og þau örva sköpunargleðina. Eggjahátíðin á að halda áfram eftir að Hönnunarmars lýkur, með eggja-popup-viðburðum. Þetta er bara byrjunin á einhverju æðislegu,“ segir Áslaug og bætir við að þeir sem ekki komist á sýninguna geti fylgst með hvar þeir geti gripið páskastemninguna þetta árið, eggjabikara Bjarna, Júllaegg og Letterpress servéttur með teikningum Ránar. „Flottara verður varla páskaborðið.“
Sýningin „Allir fuglar úr eggi skríða“ opnar í dag fimmtudag í Gröndalshúsi við Fischersund kl. 18-22. Hjörleifur Hjartarson, annar höfundur bókarinnar FUGLAR, heldur fyrirlestur um egg laugardaginn 17. mars kl. 13 í Gröndalshúsi en strax á eftir kl. 14 verður boðið upp á egg Benedikt Gröndal með kampavíni og vodka.