Birgðir Magnús Magnússon í vörugeymslu Garra, en fyrirtækið fær vörur, þ. e matvæli og hreinlætisvörur frá um 200 birgjum bæði innlendum og erlendum sem eru seldar til veitingastaða, hótela, bakaría, mötuneyta, skóla og fleiri. Alls starfa um 80 manns hjá fyrirtækinu sem er gamalgróið og traust.
Birgðir Magnús Magnússon í vörugeymslu Garra, en fyrirtækið fær vörur, þ. e matvæli og hreinlætisvörur frá um 200 birgjum bæði innlendum og erlendum sem eru seldar til veitingastaða, hótela, bakaría, mötuneyta, skóla og fleiri. Alls starfa um 80 manns hjá fyrirtækinu sem er gamalgróið og traust. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nýlega var starfsemi heildverslunarinnar Garra ehf. flutt í nýja sérhæfða byggingu við Hádegismóa í Reykjavík.

Viðtal

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Nýlega var starfsemi heildverslunarinnar Garra ehf. flutt í nýja sérhæfða byggingu við Hádegismóa í Reykjavík. Nauðsynlegt þótti að komast í rýmra húsnæði enda hafa umsvifin í rekstri fyrirtækisins aukist mjög á undanförnum árum. Alls starfa um 80 manns hjá Garra sem flytur inn mat og hreinlætisvörur og selur til veitingastaða, hótela, bakaría, mötuneyta, skóla og annara opinberra aðila og fyrirtækja.

„Á síðasta ári þróuðust mál okkar í þá veru að við þurftum að vera flutt eigi síðar en 15. desember. Sú tímasetning hentaði starfsemi okkar vel, eins og kom á daginn. Flutningarnir gengu vel og snuðrulaust fyrir sig og þjónustan raskaðist aldrei. Því til sönnunar hafa viðskiptavinir verið að spyrja hvort við séum flutt eða enn á gamla staðnum,“ segir Magnús Magnússon, forstjóri Garra.

Þrískipt bygging

Það var árið 2013 sem stjórnendur Garra fóru að líta í kringum sig þegar ljóst var að starfsemin þyrfti í stærra hús. Fyrirtækinu bauðst lóðin í Hádegismóum sem hentaði vel, enda nærri fjölförnum umferðaræðum og flutningar á vörum til viðskiptavinar á beinni braut. Ákveðið var að byggja hús sem er 8.300 fermetrar að flatarmáli og undir þaki eru 90 þúsund rúmmetrar. Segja má að húsið sé þrískipt; síní hvorum enda eru miklar vörugeymslur en í fjögurra hæða miðrými eru meðal annars skrifstofur, aðstaða sölufólks og ýmis salarkynni. Á jarðhæði miðrýmis eru afgreiðsla og stóra aðkeyrsludyr. Á lagernum í vesturenda hússins er þurrvaran og henni þar fyrir komið í rekkum sem eru allt að ellefu metra háir. Í austurhluta hússins er svo frystiklefi, sem er einn sá stærsti á landinu og tekur alls um 2.000 vörubretti. Það sem skapar sérstöðu og er nýmæli í frysti- og kæligeymslunni er að notast er við kolsýru sem er 100% umhverfisvænn kælimiðill. Magnús segir það vera svar við kröfum tímans. Freon og ammoníak sem hafa verið algengir kælimiðlar hingað til eru á útleið og verða sennilega bannaðir innan fárra ára vegna neikvæðra umhverfisáhrifa.

„Með því að nota kolsýruna tökum við stökk inn í framtíðina, nálgumst málið með langtímahugsun og förum bestu leiðina sem á endanum er ódýrust,“ segir Magnús. Bætir við að umhverfisþættir hafi verið hafðir að leiðarljósi við hönnun og byggingu hússins og þau séu einn af grunnþáttum í rekstri Garra.

Húsið nýja er byggt úr endurnýtanlegum byggingarefnum; burðarvirkið er stálgrind, ytra byrði er einangrað með steinull í stað frauðplasts eins og tíðkast hefur. Í húsinu er svo orkusparandi LED-lýsing, vatnsgeislahitun hitar upp vinnurými starfsmanna og allir lyftarar í húsinu eru knúnir orkusparnadi lithium-rafhlöðum sem er nýmæli hér á landi. Svona mætti áfram telja og í krafti þessa er stefnt að því að fá bygginguna umhverfisvottaða skv. stöðlum.

Heildarkostnaður við byggingu hússins er um þrír milljarðar kr.

Markaðurinn er að breytast

„Það var algjört forgangsmál að vinnuaðstaða starfsfólks yrði sem best og þegar svo er ætti reksturinn líka að ganga betur. Góð aðstaða tryggir líka skjótan afgreiðsluhraða og ánægðari viðskiptavini. Vörur berast okkur oftast í gámum sem við tæmum og röðum í samræmi við veltuhraða, en héðan úr húsi fara á degi hverjum alls um 500 sendingar, litlar sem stórar,“ segir Magnús og bætir við að matvörumarkaðurinn sem Garri starfar á sé stöðugt að breytast. Neytendur séu vel meðvitaðir um hollustu, næringargildi og svo framvegis. Fólk borði í æ ríkari mæli utan heimilis; fullorðnir til dæmis á vinnustað, börn í skólum og svo framvegis. Þetta sjáist augljóslega í starfsemi Garra sem selur vörur frá um 200 birgjum og framleiðendum, innlendum sem erlendum.

Græn hugsun er ráðandi

„Breytingar lúta ekki bara að matvörunni sjálfri, heldur líka umbúðunum sem í vaxandi mæli eru úr niðurbrjótanlegum hráefnum svo sem maíssterkju, sykurreyr og pálmalaufum. Svona koma allir umhverfisþættir sterkar inn og þessi þróun er rétt að hefjast. Græn hugsun er hvarvetna ráðandi og svo verður líka að vera með vísan til hækkandi hitastigs, bráðnunar jökla og annars slíks sem snertir allt líf á jörðinni. Byggingin okkar og val á efnum í henni tekur mið af þessu og raunar á öll starfsemin hér að sýna hvar við stöndum í þessum efnum,“ segir Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri Garra.