Upplifunarreif, eða skynjunarreif, nefnist viðburður sem Fischer, ný búð í Grjótaþorpinu, efnir til kl. 16-18 í dag, fimmtudaginn 15. mars. Þar er lögð áhersla á að örva allar skynjanir, skoða hugmyndir um skynjun og tekur vöruúrvalið mið af því.
Upplifunarreif, eða skynjunarreif, nefnist viðburður sem Fischer, ný búð í Grjótaþorpinu, efnir til kl. 16-18 í dag, fimmtudaginn 15. mars. Þar er lögð áhersla á að örva allar skynjanir, skoða hugmyndir um skynjun og tekur vöruúrvalið mið af því. Gestum er drekkt í ilmi, tónlist, áferð, bragði og myndum og boðið í ferðalag um búðina í tilefni Hönnunarmars.