Hönnunarmas hefst í dag með tilheyrandi gleði og girnilegum uppákomum. Þar að auki verður girnilegur páskamarkaður í Laukalæk.
Stórkostlegt eggjapartí
Gröndalshúsið, Fischersundi,15.-18. apríl.
Teflt er saman teikningum Ránar Flygenring og Benedikts Gröndal af fuglum og eggjum í innsetningu Birnu Geirfinnsdóttur. Omnom kynnir sérlöguð súkkulaðiegg í ólíkum formum, Reykjavík Letterpress verpir nokkrum nýjum eggjum, Bjarni Sigurðsson leirlistamaður frumsýnir eggjabikara með aðstoð landnámshænu og bókaútgáfan Angústúra opnar eggjabókasafn.
Páskamarkaður Laugalækjar
Laugalæk 11-16 Frú Lauga,Kaffi Laugalækur,
Pylsumeistarinn og Ísbúðin Laugalæk halda skemmtilegan markað í sameiningu. Girnileg tilboð og páskastemning. tobba@mbl.is