Darri Hilmarsson
Darri Hilmarsson
Darri Hilmarsson, leikmaður körfuknattleiksliðs KR, mun ekki leika hér á landi á næstu leiktíð. Darri flytur til Svíþjóðar í haust með kærustu sinni sem er á leið í nám, en þetta kom fram í tímariti körfuknattleiksdeildar KR.

Darri, sem orðið hefur sex sinnum Íslandsmeistari, tvisvar bikarmeistari og fimm sinnum deildarmeistari, segir ekki loku fyrir það skotið að hann haldi ferlinum áfram í Svíþjóð:

„Ég vil að það sé einhver metnaður þar sem ég spila og hlutunum sinnt vel þannig að hægt sé að ná árangri. Ef það er til staðar þá myndi ég líklega taka nokkur tímabil í viðbót,“ sagði Darri við tímarit KR. sindris@mbl.is