Stephen Curry
Stephen Curry
NBA-meistararnir í Golden State Warriors verða án þeirra Stephens Curry og Klay Thompson á næstunni en báðir glíma þeir við meiðsli. Curry meiddist á ökkla í annað sinn á tímabilinu og Thompson brákaði þumalfingur.

NBA-meistararnir í Golden State Warriors verða án þeirra Stephens Curry og Klay Thompson á næstunni en báðir glíma þeir við meiðsli. Curry meiddist á ökkla í annað sinn á tímabilinu og Thompson brákaði þumalfingur. Þá er Draymond Green einnig meiddur og er meistaraliðið því farið að láta verulega á sjá.

Golden State er í kapphlaupi við Houston Rockets um efsta sætið í Vesturdeildinni og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. En forráðamenn liðsins ætla ekki að láta það trufla sig og ætla ekki að taka óþarfa áhættu varðandi þessa tvo lykilmenn liðsins.

Á meðan svo er dregur stórstjarnan Kevin Durant vagninn og skoraði 26 stig í sigri á LA Lakers aðfaranótt fimmtudags.