Andres Iniesta
Andres Iniesta
Andrés Iniesta, fyrirliði Barcelona, þarf að svara fyrir lok apríl hvort hann taki tilboði frá félagi erlendis frá og yfirgefi herbúðir Barcelona. Iniesta, sem er 33 ára gamall og hefur spilað yfir 400 leiki með Katalóníuliðinu, er með tilboð frá Kína.

„Fyrir 30. apríl þarf ég að taka ákvörðun um hvort ég verð áfram í Barcelona eða fari til Kína. Ég þarf að fara yfir það hvað er best fyrir mig og mitt félag. Þetta mun verða heiðarlegt fyrir mig og Barcelona,“ sagði Iniesta eftir sigur Barcelona á Chelsea í Meistaradeildinni.

„Þetta er mjög persónuleg ákvörðun sem hann þarf að taka. Ég hugsa ekki um Barcelona án Iniesta því núna höfum við Barcelona með Andrés Iniesta,“ sagði Ernesto Valverde, þjálfari Börsunga. gummih@mbl.is