Þorgils Torfi Jónsson
Þorgils Torfi Jónsson
Oddviti og varaoddviti gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn í sveitarstjórn Rangárþings ytra þar sem Hella er fjölmennasti þéttbýlisstaðurinn.

Oddviti og varaoddviti gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn í sveitarstjórn Rangárþings ytra þar sem Hella er fjölmennasti þéttbýlisstaðurinn. Ellefu gefa kost á sér í prófkjöri flokksins sem áætlað er að verði haldið um miðjan apríl.

Tveir sveitarstjórnarmenn, Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri og Haraldur Eiríksson, gefa kost á sér áfram. Hins vegar hætta Þorgils Torfi Jónsson oddviti og Sólrún Helga Guðmundsdóttir varaoddviti.

Aðrir sem bjóða sig fram eru Björk Grétarsdóttir, Heimir Hafsteinsson, Helga Fjóla Guðnadóttir, Hjalti Tómasson, Hrafnhildur Valgarðsdóttir, Hugrún Pétursdóttir, Ína Karen Markúsdóttir, Sindri Snær Bjarnason og Sævar Jónsson. helgi@mbl.is