Zen-teppið Ljóst teppi, sem unnið er út frá jöklahugmynd. Samsett úr endurunninni þæfðri ull á bómull.
Zen-teppið Ljóst teppi, sem unnið er út frá jöklahugmynd. Samsett úr endurunninni þæfðri ull á bómull.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sýningin Ullarlag á Hönnunarmars er samspil textílhönnunar Hönnu Pétursdóttur og ljósmynda Milette Raats af verkum þeirrar fyrrnefndu í íslensku landslagi.

Valgerður Þ. Jónsdóttir

vjon@mbl.is

Hugmyndin er að gestir upplifi náttúruna og landslagið innanhúss,“ segir Hanna Pétursdóttir textílhönnuður um Ullarlag, sýningu sína á Hönnunarmars. Í aðalhlutverkum eru fjölbreytt textílverk; skúlptúrar, púðar, ábreiður og annað til heimilisprýði úr splunkunýrri línu, Hanna felting. Auk þessara áþreifanlegu hönnunarverka verða á sýningunni stórar ljósmyndir, sem hollenski ljósmyndarinn Milette Raats tók af sömu verkum í íslensku landslagi.

„Ljósmyndirnar eru fimmtán talsins, svolítið færri en sjálf verkin því stundum flokkaði hún til dæmis nokkra púða saman eftir því hvort þeir líktust steinum, þúfum, jöklum eða öðrum náttúrufyrirbærum,“ útskýrir Hanna.

Þær stöllur fóru síðsumars í leiðangur til að skoða hvar best færi á að mynda gripina. „Flestar myndirnar eru teknar víðsvegar á Reykjanesi og nokkrar út í Gróttu. Myndatakan tók nokkra daga, enda voru veður og vindar ekki alltaf sammála okkur,“ segir Hanna, sem hafði svolítið hönd í bagga með að koma textílverkunum fyrir úti í náttúrunni sem og á fyrirsætunum, sem stilltu sér upp með púða á höfði eða voru umvafðar teppi svo dæmi séu tekin.

„Milette hefur starfað sem ljósmyndari í mörg ár og hefur gríðarlegan áhuga á Íslandi og öllu sem íslenskt er. Ég kynntist henni í Utrecht í Hollandi þar sem ég hef mestanpart búið frá því ég stundaði nám fata- og textílhönnun í listaháskólum í borginni í lok tíunda áratugarins. Með því að sýna jafnframt ljósmyndir af verkunum úti í íslenskri náttúru verður til samtal þannig að sýningin myndar eina heild,“ segir Hanna og telur ekki útilokað að þær setji upp sýningu með sama sniði í Utrecht eða Amsterdam innan tíðar.

Ljósmyndir koma líka með öðrum hætti við sögu á sýningunni, því á morgun, laugardaginn 17. mars, býðst Raats til að taka andlitsmyndir af gestum og gangandi í sýningarrými Ullarlags.

Hönnun Hönnu er innblásin af íslensku landslagi, sem hún segir kalla fram löngun til að uppgötva hið óaðgengilega og ósnortna. „Mig langar til að færa náttúrulega upplifun inn í líf fólks og heimili,“ segir hún. Í því skyni hannar hún púða í formi steina og jökla, þrívíddarverk sem líkjast klettabergi, veggverk eins og landslag og ábreiður sem draga dám af jöklum og klettum. Og margt fleira.

Uppistaðan í verkunum er ull, íslensk sem erlend, þæfð, prjónuð og hekluð í bland við endurnýtt bómullar- og silkiefni. „Undanfarið hef ég snúið mér í æ meira mæli að hönnun textíls fyrir heimilið, en kringum aldamótin, í upphafi starfsferilsins, lagði ég aðaláherslu á að hanna fatnað. Þá hóf ég samstarf við ullarvinnslu á Seyðisfirði um að þæfa íslenska ull, en það reyndist nokkurra ára þróunarverkefni að finna réttu samsetninguna og stilla þæfingarvél til verksins. Ég bjó í Hollandi á þessum árum, hannaði og seldi fatalínur, sem ég lét framleiða á Íslandi og tók þátt í sölusýningum með aðstoð Íslandsstofu í París og Kaupmannahöfn,“ segir Hanna.

Holland – Ísland – Holland

Árið 2006 ákvað hún og hollenskur eiginmaður hennar að flytjast til Íslands og hér bjuggu þau til ársins 2013.

„Árið 2007 opnaði ég verslunina Hönnu í miðborg Reykjavíkur þar sem ég hafði hönnun mína á boðstólum. Þetta var kannski ekki alveg heppilegasti tíminn, en þar sem ég bjó í Hollandi hafði ég ekki gert mér grein fyrir hve ástandið hér var slæmt. Áherslur breyttust og raunar varð túristasprengjan mér til happs því erlendu ferðamennirnir keyptu mikið af ullarvörum.“

Engu að síður sneri þau hjónin aftur til Utrecht, þar sem Hanna hefur í nokkur ár rekið gallerí í miðborginni ásamt öðrum listamönnum og hönnuðum. Hún unir hag sínum vel og er með ýmsar hugmyndir á prjónunum að nýjum vörum í Hönnu felting-línuna sína.

Í haust stendur svo fyrir dyrum að kynna heimilisvörur úr þeirri línu á textílsölusýningu í París.

Sýningin Ullarlag verður opnuð kl. 17, í dag, föstudaginn 16. mars, og stendur til kl. 20 í Kex Hostel/Gamla Nýló, Skúlagötu 28, 1. hæð. Laugardaginn 17. mars er opið frá 11-17, og sunnudaginn 18. mars frá 13-17.