Þessi klassíska ZO-ON úlpa hefur haldið hita á íslenskum krökkum í áratug. Jaki státar af vatnsheldu Drykidz-efni og léttu vattfóðri sem heldur hita á unga fólkinu okkar. Hún kostar 24.990 og er til í stærð upp í 176..
Stormur-jakki fyrir sumar í borginni, ZO-ON
Léttur herrajakki sem hrindir frá sér vatni og kemur sér vel þegar kólnar á sumarkvöldum. Nútímalegur og í flottu sniði fyrir ævintýragjarna nýfermda strákinn. Hann kostar 20.993 kr.
Regnjakki, My Concept Store
Þessi huggulegi regnjakki fyrir fermingarstúlkuna hentar bæði í útilegu sem og í borgina. Hann kostar 14.800 kr.
Ecco Track 25, Skor.is
Flottir gönguskór fyrir unga menn, hlýir og góðir. Þeir eru með GORE-TEX®-vatnsvörn í fóðrinu og framleiddir úr blöndu af leðri og nubuck-leðri. Kosta 25.995 kr.
Allez-hjól, hjólreiðaverslunin Kría
Kostar 101.994 kr.
Selfoss, ZO-ON
Þessi hefðbundni útivistarbakpoki hentar vel fyrir öll ævintýri í borginni sem og meira krefjandi aðstæður. Verð 9.990 kr.
Reykholt-leðurhanskar, ZO-ON
Þessi einstaki gripur er fyrir ungt fólk sem ferðast á milli borgar og náttúru.