Falleg hárnæla í fléttu gerir gæfumuninn.
Falleg hárnæla í fléttu gerir gæfumuninn.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Spennandi hárskraut, bylgjur og liðir, sem leggur áherslu á fegurð og gleði er það sem við sjáum núna, að sögn Hörpu Ómarsdóttur, hársnyrtimeistara og skólastjóra Hárakademíunnar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

Harpa rekur einnig hársnyrtistofuna Blondie í Mörkinni 1. Hún tók þátt í tískuvikunni í London á dögunum og er nýkomin heim frá Belgíu. ,,Ég hef verið sendiherra Label.M á Íslandi síðustu fjögur árin og unnið náið með Toni and Guy og þeirra listræna teymi í London sem og Baldri Rafni, eiganda Label.M á Íslandi.“ Þegar kemur að hártískunni í ár segir hún: „Hártískan er ákaflega skemmtileg að mínu mati núna. Við sjáum mikið af alls konar litapalletum. Styttur eru aftur að koma í tísku, toppar og möllett. Hárið á strákunum er að síkka afur og þeir eru að lýsa hárið.“

„Það sem er hvað mest áberandi í dag í greiðslum eru fléttur og hárskraut. Klútar, hárbönd, kambar, spennur, bönd og fleira.“

Harpa segir götutískuna ráða ríkjum um þessar mundir, kannski vegna áhrifa frá samfélagsmiðlum.

„Allir þessir Instagrammarar og Snapchattarar móta tískuna með tískurisunum.“

Rómantísk tíska

Harpa segir tískuna í dag einnig minna mikið á rómantíkina á áttunda áratug síðustu aldar og leita einnig í tíunda áratuginn.

Skartgripir hafa verið að stækka og með hárefnum og glans leitast nú fólk við að gera hárið eins og skínandi skart að hennar sögn.

Fallegt hárskraut í stíl við fermingarfötin

Varðandi fermingargreiðsluna er vinsælt að vera með létta liði í hárinu. „Fallegar fléttur frá andliti eða hálfur snúður er það nýjasta í fermingunum. Fallegt hárskraut, sem er í stíl við fatnað fermingarstúlkunnar er einnig í tísku. Mikilvægt er að nota hitavörn til að blása hárið upp úr og hársprey til að liðirnir haldi sér yfir fermingardaginn.“ Hún mælir með að fermingarstúlkur fái ráð frá fagfólki í þessum efnum.

Stutt hár fyrir strákana með hliðartopp

Hjá strákunum er vinsælt að hárið sé stutt um þessar mundir þó svo það sé líka aðeins að síkka, en hliðartoppur er mikið í tísku. „Þá greiða þeir hárið til hliðar jafnvel með smá „wet look“.“

Að lokum segir Harpa að þriðjudaginn 20. mars kl. 17-20 í Hárakademíunni Mörkinni 1 verði haldið fermingarkvöld þar sem allir eru velkomnir. „Við munum sýna hvernig best er að beita áhöldum í hár fermingarstúlkna. Það verður kynning á HH Simonsen hitajárnum sem flestir þekkja og Label.M hárvörum.

Einnig verður kynning á Marc Bain vörunum til að gefa húðinni fallegan og frísklegan húðlit.“