Allir fuglar úr eggi skríða er yfirskrift sýningar sem opnuð var í gær í Gröndalshúsi og er óður til eggja. Er sýningin hluti af dagskrá Hönnunarmars sem stendur yfir 15.-18. mars og er nú haldinn í tíunda sinn.
Allir fuglar úr eggi skríða er yfirskrift sýningar sem opnuð var í gær í Gröndalshúsi og er óður til eggja.
Er sýningin hluti af dagskrá Hönnunarmars sem stendur yfir 15.-18. mars og er nú haldinn í tíunda sinn. Að sýningunni standa Áslaug Snorradóttir, Birna Geirfinnsdóttir, Rán Flygenring, Omnom, Reykjavik Letterpress, Bjarni Sigurðsson og Angústúra.