Þessi bolur er úr vor- og sumarlínu Gucci. Hann fæst á www.net-a-porter.com.
Þessi bolur er úr vor- og sumarlínu Gucci. Hann fæst á www.net-a-porter.com.
Merkjavörur hafa aldrei verið vinsælli og er Gucci algerlega heitasta merkið í dag, sérstaklega hjá ungmennum. Upp á síðkastið hefur verið mjög mikil bola-tíska og koma merkjavörubolir sterkir inn.

Merkjavörur hafa aldrei verið vinsælli og er Gucci algerlega heitasta merkið í dag, sérstaklega hjá ungmennum. Upp á síðkastið hefur verið mjög mikil bola-tíska og koma merkjavörubolir sterkir inn. Slegist er um stuttermaboli frá þessu ítalska tískuhúsi en þá er hægt að panta á netinu á www.net-a-porter.com og kosta þeir í kringum 30.000 krónur.

Það má svo deila um það hvort fatakaup séu komin út í rugl eða ekki. En því er ekki hægt að leyna að slíkt góss er mjög eftirsótt.