Þriðja bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði hefst í dag. Hún er í ár helguð Guðrúnu Helgadóttur og verður kvikmynd byggð á bók hennar um Jón Odd og Jón Bjarna sýnd í Bæjarbíói á morgun kl. 14.
Þriðja bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði hefst í dag. Hún er í ár helguð Guðrúnu Helgadóttur og verður kvikmynd byggð á bók hennar um Jón Odd og Jón Bjarna sýnd í Bæjarbíói á morgun kl. 14. Klukkustund fyrr skora leikarar myndarinnar Víti í Vestmannaeyjum, sem byggist á bók Gunnars Helgasonar, á krakka í vítaspyrnukeppni. Markmið hátíðarinnar er að minna á mikilvægi lestrar og bóka og tengsl þeirra við kvikmyndir. Nánari upplýsingar á hafnarfjordur.is.