Gulur lottóstandur gengur í endurnýjun lífdaga og þjónar sem bæklingastandur fyrir 20 nýja bæklinga eftir jafnmarga listamenn á sýningunni Bæklingar sem opnuð verður í Open á Grandagarði 27 í kvöld kl. 20.
Gulur lottóstandur gengur í endurnýjun lífdaga og þjónar sem bæklingastandur fyrir 20 nýja bæklinga eftir jafnmarga listamenn á sýningunni Bæklingar sem opnuð verður í Open á Grandagarði 27 í kvöld kl. 20. Um er að ræða fyrstu opnun Open sem er vinnustofa og sýningarrými Arnars Ásgeirssonar, Hildigunnar Birgisdóttur, Unu Margrétar Árnadóttur og Arnar Alexanders Ámundasonar.