Við erum mörg okkar með góðar uppskriftir sem við bjóðum reglulega upp á þegar við höldum veislur. Það að blanda granateplum í uppskriftir eða að nota ávöxtinn til skreytingar gefur einföldum veitingum nýtt hátíðarútlit. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Granatepli eru fáanleg víða hér á landi. Það að blanda ávextinum út í einfalt krem á bollakökurnar býr til himneskan lit.
Granatepli til skreytingar á pavlovu eða einfalda súkkulaðiköku býr til fallegt útlit og getur sú einfalda hugmynd að blanda granateplum við uppskriftirnar á veisluborðinu búið til þema sem tengir réttina.