[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Don Cano var án efa vinsælasta fatamerki á Íslandi á níunda áratugnum. Svíinn Jan Davidsson sem stofnaði Don Cano hefur nú hafið framleiðslu á merkinu að nýju. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is

Það muna margir eftir tískumerkinu Don Cano sem kom fyrst á markað árið 1981 en vinsældir Don Cano-krumpu- og glansgallanna voru gríðarlegar á sínum tíma og má í raun segja að þessir eftirminnilegu gallar hafi gersamlega átt íslenskan markað.

Hugmyndasmiður Don Cano er Svíinn Jan Davidsson. Jan hefur einstakt auga fyrir hönnun og klæðskurði og hóf sinn feril til að mynda á hinni þekktu klæðskeragötu Lundúna, Savile Row, þar sem hann útbjó jakkaföt á kóngafólk og leikara áður en hann fluttist til Íslands og snéri tískunni, eins og hún þekktist, við.

Aðstoðaði við textíliðnaðinn

Jan kom fyrst til Íslands árið 1970. Hann var þá fenginn af íslenska ríkinu til þess að kynna sér og aðstoða við þróun á textíliðnaðinum hér á landi. Áður hafði hann starfað sem ráðgjafi í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. „Ég vann fyrir flest fyrirtæki hér á Íslandi sem unnu með föt á þessum tíma til að mynda Álafoss og Sambandið,“ útskýrir Jan sem starfaði til dæmis einnig fyrir Karnabæ og byggði upp framleiðslu fyrir fyrsta íslenska gallabuxnamerkið, Bandido, áður en hann stofnaði eigið merki. „Eftir 10 ár í bransanum hefði maður getað sagt að þessi iðnaður væri búinn hér á landi þar sem fólk var farið að horfa meira út fyrir landsteinana hvað varðaði verslun og framleiðslu,“ útskýrir Jan en það voru afar fáar fataverksmiðjur eftir hér á landi árið 1980 og þá voru hér aðallega fatafyrirtæki tengd útgerðinni.

Árið 1981 hóf Jan því framleiðslu á eigin merki sem bar heitið Don Cano sem einkenndist af sportlegum fatnaði. Don Cano náði gríðarlegum vinsældum hér á landi og víðar. „Don Cano varð ekki eingöngu vinsælt hér í landi heldur einnig í Noregi, til að mynda seldum við fyrir 30 milljónir norskra króna í heildsölu árið 1983, og í London þar sem vörumerkið var meðal annars selt í versluninni Harrods.“ Samhliða Don Cano vann Jan að ýmsum verkefnum víðs vegar um heiminn og hannaði meðal annars jakka fyrir New York-ballettinn og fatnað fyrir Ólympíuleikana.

Aðspurður hvað hafi orðið til þess að Don Cano hafi orðið svona vinsælt á sínum tíma svarar Jan: „Við vorum rosalega nýtt fyrirbæri. Ég hafði hjálpað fyrirtækjum að byggja upp merki og koma þeim á skrið þegar ég starfaði sem ráðgjafi svo ég vissi nokkurn veginn hvað virkaði. Þetta er ákveðinn hæfileiki og orka að ná að skapa þennan heim.“

Breytingar á markaði

Framleiðslan varð dýrari og erfiðara að fá fjármagn. Jan sagði í kjölfarið skilið við Don Cano og hélt til Bandaríkjanna og hóf að starfa sem ráðgjafi fyrir stór fyrirtæki á borð við Marks & Spencer og fleiri. Hann snéri aftur til Íslands árið 1990, þar sem fjölskyldan beið hans, og hóf að vinna fyrir 66 norður, sem áður hafði að mestu leyti unnið fatnað fyrir útgerðina. Jan byggði upp útvistarlínu fyrir merkið. Þaðan fór hann til þess að stofna fyrirtækið Cintamani ásamt Hermanni Sigursteinssyni og starfaði þar í nokkur ár áður en hann fór aftur að starfa við uppbyggingu 66 norður ásamt Sigurjóni Sighvatssyni þar sem hann vann að því að skapa þá ímynd sem fyrirtækið hefur í dag.

Getur ekki hætt

Það var síðan fyrir fjórum árum að Jan ákvað að endurvekja Don Cano. „Mér fannst ég hálfpartinn hafa stungið af á sínum tíma og mér fannst Don Cano svolítið eiga það inni hjá mér að halda áfram,“ útskýrir Jan.

Don Cano var vinsælla en nokkuð sem hafði sést hér á landi fyrr eða síðar. „Þetta var risastórt. Nú er ég 73 ára gamall og get ekki hætt. Klæðskeri er alltaf klæðskeri og það er það sem ég er. Þó að ég hafi orðið verkfræðingur og ráðgjafi þá er grunnur minn alltaf klæðskurður. Ég vona líka að Karl Magnússon, fyrrverandi viðskiptafélagi minn frá dögum Don Cano, brosi frá himnum þegar hann sér hvað ég er að gera. Aldrei að vita hvort hann sé kannski með puttana í þessu líka.“

Aðspurður segist Jan vissulega finna fyrir breytingum í iðnaðinum. „Áður fyrr snérist þetta um gæði vörunnar og hönnunina sjálfa – ferlið að búa til hágæðavöru. Í dag er ekkert mál að selja drasl með réttri markaðssetningu og réttum samfélagsmiðlum. Við hjá Don Cano leggjum alltaf áherslu á að gera hágæðavöru á verði sem allir geta keypt hana á.“ Markmiðið er að kynna Don Cano fyrir nýjum kúnnum. „Mín gleði kemur frá því að sjá fallega vöru sem uppfyllir mína drauma um fallega hluti. Ég lifi fyrir að skapa fallega hluti, ég elska að búa til föt og það held ég að sé ástæða þess að merki gengur vel.“

Áherslurnar eiga ekki að breytast

Ferlið að hverri flík hefst með saumavélinni úti á Granda. „Hérna geri ég grunninn að öllum okkar flíkum. Til þess að ná sniðinu réttu og ná ákveðinni fullkomnun í sniðagerð verð ég að geta búið til flíkina sjálfur,“ útskýrir Jan sem lætur síðan framleiða fatnaðinn í Kína og Litháen. „Þess vegna er ég meira í Litháen en á Íslandi, það er svo mikilvægt að vinna með framleiðendum og ég væri helst til í að hafa eigin verksmiðju, en það gerist kannski áður en ég verð 100 ára,“ segir Jan og hlær.

Aðspurður hvort áherslurnar hjá Don Cono hafi breyst með árunum segir Jan að þær eigi í raun ekki að breytast. Það sem Don Cano hafði upp á að bjóða voru snið og gæði. „Ég var aðeins kjarklaus núna í byrjun og vann mikið með svart en nú er ég farinn að vinna meira með liti og jafnvel þá liti sem við unnum með á árum áður.“ Jan hefur fulla trú á merkinu og er fullviss um að merkið eigi eftir að ná flugi á íslenskum markaði. „Þetta var auðveldara í gamla daga. Nú er þetta aðeins flóknara með tilkomu samfélagsmiðla og netsins.“ Þá segir Jan að í dag geti hver sem er titlað sig fatahönnuð og ógrynni af allskonar óvönduðum varningi sé í boði sem hvorki sé einstakur né alvöruhönnun til uppdráttar. „Hönnunarheimurinn í dag snýst svolítið mikið um endurgerðir. Það er öðruvísi að nálgast hönnun sem er einstök.“

Barnalína væntanleg

Að þessu sinni leggur Jan allt undir þar sem hann hefur sjálfur lagt fjármuni í fyrirtækið og fjárfest í vinnustofu á Fiskislóð 45.

Hann stundar skíði og syndir á hverjum degi sem hann álítur kost þegar kemur að því að hanna útivistarfatnað, að þekkja bæði vöruna og þægindi þegar kemur að útivist. Jan notar engar dýraafurðir í hönnun sinni og eru allar flíkur Don Cano bæði þá og nú ætluð fyrir bæði kyn. Í haust kynnir Don Cano-barnalínu.

Spurður að lokum hvers vegna hann ákvað að endurvekja Don Cano frekar en stofna nýtt merki svarar Jan: „Þetta er mjög erfið spurning. Ég get svarað þessu eftir tvö ár. Hjá Don Cano geri ég út á að úrvalið einkennist af fáum og vönduðum flíkum. Þetta er svolítið eins og með McDonalds. Þú veist að hverju þú gengur. Þú manst matseðilinn að eilífu. Og þannig á það að vera með Don Cano.“