Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að ganga að tilboði Stálborgar ehf. um rif á stúku og stæðum Valbjarnarvallar í Laugardal ásamt förgun og landmótun.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að ganga að tilboði Stálborgar ehf. um rif á stúku og stæðum Valbjarnarvallar í Laugardal ásamt förgun og landmótun.

Alls bárust sjö tilboð í verkið og átti Stálborg lægsta tilboðið, tæpar 37 milljónir. Var það 69% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 53,5 milljónir. Stefnt er að því að hefja verkið fljótlega.

Valbjarnarvöllur var tekinn í notkun árið 1978. Mannvirki vallarins voru í niðurníðslu og hafa verið dæmd ónýt. Þegar mannvirkin hafa verið rifin verður svæðið tyrft.

Þróttur hefur notað Valbjarnarvöllinn sem æfingasvæði fyrir barna- og unglingastarf undanfarin ár og hyggst gera það áfram.

sisi@mbl.is