Tónleikarnir eru í boði K100 og Gaman ferða.
Tónleikarnir eru í boði K100 og Gaman ferða.
Þessa vikuna var heldur betur mikið fjör á K100. Hlustendur kepptust við að ná inn í útsendingarsímann til að næla sér í miða á tónleika Sam Smith í boði K100 og Gaman ferða.
Þessa vikuna var heldur betur mikið fjör á K100. Hlustendur kepptust við að ná inn í útsendingarsímann til að næla sér í miða á tónleika Sam Smith í boði K100 og Gaman ferða. Reglurnar voru afar einfaldar en þegar tvö lög með Sam Smith heyrðust í röð var opnað fyrir símann og þá þurfti að leysa þraut tengda tónlistarmanninum. Birgir Þór Ingvarsson stóð uppi sem sigurvegari og er á leið til London í apríl með kærustunni. Hann var eðlilega í skýjunum en vinningurinn inniheldur tveggja nátta ferð með flugi, gistingu og miðum á tónleikana.