Vinafélag Njálsgöturólós stendur fyrir danspartíi á elsta leikvelli Reykjavíkur, Njálsgöturóló í Norðurmýri, í dag milli kl. 14 og 16. „Tónlistin verður í fjölskylduvænu bíti og stuðið í fyrirrúmi.
Vinafélag Njálsgöturólós stendur fyrir danspartíi á elsta leikvelli Reykjavíkur, Njálsgöturóló í Norðurmýri, í dag milli kl. 14 og 16. „Tónlistin verður í fjölskylduvænu bíti og stuðið í fyrirrúmi. Rapparinn Góði úlfurinn treður upp, dansarar frá Dansi Brynju Péturs sýna sitt grúv og DJ Sigrún Skafta heldur fólki við efnið. Viðburðurinn er opinn öllum, en foreldrar skulu mæta í fylgd barna og öfugt,“ segir í tilkynningu.