[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.

Baksvið

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Sænski arkitektinn Andreas Martin-Löf sagði frá verðlaunahönnun sinni á fjölbýliseiningahúsunum Snabba Hus, eða hraðhúsum í lauslegri þýðingu, á fundi um skipulag og arkitektúr í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni í gær. Íbúðirnar, sem eru 33 fermetra stúdíóíbúðir, eru fullkláraðar með innréttingum og öllu á verkstæði úti í bæ og svo raðað saman í grind á byggingarstað, rétt eins og þegar vínflöskum er raðað í vínrekka, eins og arkitektinn komst sjálfur að orði á fundinum. Martin-Löf segir aðspurður að aðilar hér á landi hafi komið að máli við sig síðan hann kom til landsins fyrir tveimur dögum og lýst yfir áhuga á lausninni. Hann væri opinn fyrir slíku samstarfi, hvort sem íbúðareiningar yrðu fluttar tilbúnar milli landa, eða byggðar hér. „Margir hafa talað við mig síðan ég kom hingað og svo virðist sem sama vandamálið sé hér og í Svíþjóð, að það vanti sífellt fleiri og fleiri litlar íbúðir á markaðinn. Það yrði mjög áhugavert að sjá hvað væri hægt að gera hér í þessum efnum,“ segir Martin-Löf í samtali við Morgunblaðið.

Í kynningu á Fésbókarsíðu Arion banka segir að hönnun Martin-Löf á þessum litlu, framúrstefnulegu og ódýru einingaíbúðum sé margverðlaunuð og hafi meðal annars tryggt honum The Nordic Architecture Fair Award á dögunum.

Vantar skammtímalausn

„Vandamálið sem við í Svíþjóð stöndum frammi fyrir er að við þurfum ekki eingöngu að hugsa fyrir langtímalausnum í uppbyggingu á íbúðamarkaði, heldur einnig skammtímalausnum. Stokkhólmur er til dæmis sú borg í Evrópu sem vex hvað hraðast,“ segir Martin-Löf. Hann segir til frekari útskýringar að fólksfjölgunin í borginni sé á við það að tveir strætisvagnar fullir af nýju fólki komi inn í borgina á hverjum degi. Því sé þörfin fyrir skammtímalausn á húsnæðismarkaðinum augljós og knýjandi.

„Við erum með þetta uppbyggingarverkefni sem við köllum Snabba Hus sem er hannað upphaflega af sænska byggingarfélaginu Junior Living í samstarfi við mig og fyrirtæki mitt Andreas Martin-Löf Arkitekter. Þetta eru eins herbergis íbúðir með stórum glugga í endanum, sem hægt er að renna til hliðar, og svölum. Einingin er framleidd í verksmiðju, og allar íbúðirnar eru nákvæmlega eins, með nákvæmlega eins innréttingum. Við framleiðum tvær svona íbúðir á dag í verksmiðjunni, með öllu inniföldu. Það eina sem þarf að gera þegar komið er með íbúðina á staðinn er að tengja hana við lagna- og rafkerfið. Loftræstingin er sjálfstæð í hverri íbúð.“

Martin-Löf segir að húseiningakerfi sé í sjálfu sér ekki nýtt af nálinni, en munurinn á þessu kerfi og öðrum sé að ekki séu færðar saman margar einingar til að gera hverja íbúð, heldur er hver íbúð ein eining, og því sé það eina sem þarf að gera að „stinga henni í samband“.

Nú þegar er búið að hrinda tveimur Snabba Hus-verkefnum af stað. Einu rétt fyrir utan Svíþjóð og öðru fyrir utan Uppsali. Í vor hefst annað verkefni í Snabba Hus-hugmyndafræðinni í Stokkhólmi og 400 íbúðir verða þar tilbúnar haustið 2019. „Þá verðum við samtals komin með 700 íbúðir, og markmiðið er að klára 1.000 íbúðir í Stokkhólmi undir merki Snabba Hus.“

Þekktur fyrir endurhugsun

Martin-Löf segir spurður að því af hverju Junior Living hafi leitað til hans upphaflega, að hann hafi verið búinn að skapa sér nafn fyrir það á sænska markaðnum fyrir fimm árum að hafa endurhugsað það hvað íbúð væri og ætti að vera. Hann hafði þá mikið unnið að hönnun lúxusíbúða m.a. þar sem hönnunarþátturinn var áberandi sem og andrúmsloftið. „Þannig að það sem við gerum í Snabba Hus er að nota þær hugmyndir, en með hagkvæmnina að leiðarljósi. Að gefa íbúðaverkefninu sterkan persónuleika og yfirbragð. Mörg íbúðaverkefni skortir skýra hugmyndafræði. Ég tel að við þurfum að hafa skýrari hugmyndir, og fylgja þeim eftir með góðri framkvæmd.“

Martin-Löf talaði í erindi sínu um að oft færu arkitektar af stað með einhverja fyrirframgefna mynd í kollinum, og reyni svo að laga það sem á eftir kemur að þeirri hugmynd. „Það sem ég reyni að gera er að þróa kerfi. Þannig að kerfið sé til staðar að það sé úthugsað, og aðlaðandi. Ég legg mikla áherslu á innanhúshönnunina, en þegar hannað er með hagkvæmnina að leiðarljósi, þá þarf að sýna alúð í útfærslum og hönnun, til að verkefnið í heild sinni gangi upp. Það eru mörg dæmi til í sögunni um það þegar illa fer í gerð fjölbýlishúsa.“

Martin-Löf segir að ekki megi byggja of mikið heldur. „Við ætlum að byggja 1.000 Snabba Hus-íbúðir í Svíþjóð. Við byggjum þær allar á tímabundnu byggingarleyfi. Byggingarnar gætu í versta falli verið rifnar niður eftir 15-20 ár, því við notum tímabundið landrými sem Stokkhólmur gæti ráðstafað með öðrum hætti eftir einhver ár. Þetta er ekki töfralausn endilega, en þetta er ein af lausnunum.“

60 þúsund króna leiga

Íbúðirnar í Snabba Hus eru allt leiguíbúðir, og leigan er 4.900 sænskar krónur á mánuði, að sögn Martin-Löf, jafnvirði 60 þúsund íslenskra króna. Hann segir að leigjendur séu af ýmsum toga, fólk sem hefur átt erfitt með að finna leiguhúsnæði, meðal annars margt ungt fólk. Hann segir að umsækjendur um fyrstu 280 íbúðirnar hafi verið um 8.000 talsins. „Sumir höfðu þá beðið í 10 ár eftir leiguíbúð. Ástandið á íbúðamarkaði er verulega slæmt í Svíþjóð.“