Jósep Ó.Blöndal
Jósep Ó.Blöndal
Eftir Jósep Ó. Blöndal: "Svar við umsögnum Guðjóns Brjánssonar alþingismanns um undirritaðan í Morgunblaðinu 10. janúar sl."

Í Morgunblaðinu 10. janúar sl. eru birtar umsagnir háttvirts alþingismanns og fyrrverandi forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Guðjóns Brjánssonar (GB), við skrifum, sem birtust á facebook-síðu minni 4. janúar sl.

Ég ætla ekki að tína til öll þau atriði, sem ég – fyrir hönd starfsfólks St. Franciskusspítala – (SFS) gagnrýndi stjórn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands fyrir í kjölfar sameiningar stofnananna í janúar 2010. Aðeins þetta: Farið var af stað með fögur loforð af hálfu stjórnar, umfram allt Guðjóns Brjánssonar sjálfs, um „samstarf“. Allt var svikið, ákvarðanir voru teknar einhliða af stjórninni og gagnrýni jafnan mætt með þögn, hroka og eftirlætissvari GB: „ekki horfa í baksýnisspegilinn“!

Vana sínum trúr svarar GB ekki með einu orði þeirri gagnrýni, sem fram hefur komið. „ Þarna er víða hallað réttu máli og farið á svig við sannleikann “. Ætti ekki virðulegur alþingismaður að leggja metnað sinn í málefnalega umfjöllun í stað sleggjudóma um mína persónu?

Mín persóna er málinu óviðkomandi – ég var talsmaður SFS og starfsfólksins, en að baki gagnrýninni stóð allt starfsfólkið, eins og GB veit fullvel. Málefnafátækt þingmannsins er hins vegar svo algjör, að hann kýs að veitast að mér persónulega. Sakar mig jafnvel um rógburð!

„Samstarf...Það tókst okkur aldrei með þessum einstaklingi. Hann hefði getað valið að bera klæði á vopnin og ná sáttum...“;

„Hann kann ekki að eiga samstarf við annað fólk“; „Hann er ekki við alþýðuskap“

; og: „Hann hefði getað gert þetta með meiri sóma“.

Ég byrjaði að vinna 9 ára gamall í síldinni á Siglufirði og vann upp í gegnum alla mína skólagöngu ýmis störf, aðallega verkamannavinnu. Að loknu námi hef ég starfað í fjórum löndum sem skurðlæknir, svæfingalæknir, heilsugæslulæknir, yfirlæknir á áfengisklíník, sérfræðingur og deildarlæknir á tveimur sænskum sjúkrahúsum, sjúkrahúslæknir og heilsugæslulæknir á Patreksfirði í 6 ár, sjúkrahúslæknir í 27 ár á SFS, verið í fagteymi háls- og bakdeildar í 25 ár, starfað í fjölmörgum fagfélögum hérlendis og erlendis, og setið í stjórn og nefndum sumra þeirra, kennt á námskeiðum og í Háskóla Íslands, og alltaf staðið í þeirri meiningu að ég ætti auðvelt með að starfa með öðru fólki, væri sæmilega þægilegur í umgengni og þokkalegur stjórnandi og kennari.

Fólk hefur yfirleitt látið vel af samvinnu við mig, og skjólstæðingar hafa iðulega þakkað mér lipurð í samskiptum. En það þarf auðvitað stjórnvitring og mannvin af kaliber Guðjóns Brjánssonar til að leiða mér fyrir sjónir, að þetta er auðvitað misskilningur af minni hálfu og annarra. Og sú staðreynd að ég er „ekki við alþýðuskap“, skýrir e.t.v. erfiðleikana í „samstarfi“ við þá Guðjón og Þóri Bergmundsson, framkvæmdastjóra lækninga og rekstrar, því þeir eru alþýðan holdi klædd.

Nokkrir punktar úr afrekaskrá stjórnar HVE:

1) Sagt var upp reyndasta verkjahjúkrunarfræðingi landsins strax í upphafi – á stofnun, sem hefur rekið verkjadeild, sem þjónar öllu landinu, síðan 1992.

2) Staða sérfræðings aflögð.

3) Aðeins einn heilsugæslulæknir verður starfandi í stað tveggja.

4) Starfsemi rannsóknarstofu verður endanlega hætt og starf lífeindafræðings lagt af.

5) Stórlega hefur dregið úr hlutverki SFS, og stofnunin stefnir í að verða hjúkrunardeild með lágmarks starfsemi, rekin af heilsugæslulækni í hjáverkum.

6) Röntgenþjónusta er í lausu lofti.

7) Dregið hefur úr allri stoðþjónustu og stöðugildum fækkað eða þau rýrð.

8) Allar ákvarðanir varðandi starfsemi SFS hafa verið teknar einhliða, án þess samráðs, sem lofað var í upphafi. Gagnrýni og sáttaumleitanir hafa reynst árangurslausar.

9) Þá hefur verið ráðinn „yfirlæknir háls- og bakdeildar“ – í hlutastarfi. Útilokað er að læknir í hlutastarfi ráði við þau verkefni, sem bíða deildarinnar.

10) Ég bauð stjórninni að starfa áfram við SFS þar til fundinn væri eftirmaður, sem réði við öll þau verkefni, sem hvíla og munu hvíla á „yfirlækni sjúkrasviðs“. Mér var þá gert tilboð, sem stjórnin mátti vita, að ég gæti alls ekki gengið að. Ég hafði áður verið auðmýktur af stjórninni, og það er kappnóg að vera auðmýktur einu sinni. Enginn vilji var til samninga af hálfu stjórnar.

Meðalmennskunni verður flest að vopni.

Hér er fátt eitt upptalið.

GB klykkir út með: „ Honum er þó margt til lista lagt. Sem dæmi er hann afbragðsgóður píanóleikari“ !!!! Ef dómbærni Guðjóns Brjánssonar á þessu sviði er á svipuðu gæðastigi og dómbærni hans á eigið ágæti, afþakka ég hrósið.

„Hefði getað gert þetta með meiri sóma“. Ég held að orðið „sómi“ eigi Guðjón og aðrir í stjórn HVE að umgangast af mikilli varkárni.

Að endingu skora ég á Guðjón Brjánsson og stjórn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að lögsækja mig fyrir „rógburðinn“. Það gæti þá orðið til þess að farið væri ofan í dæmalaus vinnubrögð stjórnarinnar í garð SFS og starfsfólks þeirrar góðu stofnunar.

Stykkishólmi, 19. febrúar, 2018.

Lengri útgáfu af greininni

má finna á mbl.is/netgreinar

Höfundur er læknir. joblo@simnet.is