Nýr listi sem ber heitið Höfuðborgarlistinn íhugar framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Höfuðborgarlistinn var skráður hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra 27. febrúar síðastliðinn og er flokkaður undir starfsemi stjórnmálasamtaka.

Nýr listi sem ber heitið Höfuðborgarlistinn íhugar framboð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Höfuðborgarlistinn var skráður hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra 27. febrúar síðastliðinn og er flokkaður undir starfsemi stjórnmálasamtaka. Á vef Ríkisskattstjóra er Björg Kristín Sigþórsdóttir skráð stjórnarformaður félagsins.

Þegar Morgunblaðið óskaði upplýsinga um framboðið svaraði hún því játandi að unnið væri að framboði fyrir komandi kosningar.

Björg Kristín er í forsvari fyrir listann að hennar sögn. Þá er málefnavinna hafin og verða frekari upplýsingar veittar síðar. Ekki fengust svör að sinni um stefnumál listans. Þá fengust ekki heldur upplýsingar um hverjir myndu gefa kost á sér til setu á lista framboðsins. mhj@mbl.is