Emma Higgins
Emma Higgins
Emma Higgins, landsliðsmarkvörður Norður-Írlands í knattspyrnu sem hefur varið mark Grindavíkur flest tímabil frá árinu 2010, er gengin til liðs við Selfyssinga.

Emma Higgins, landsliðsmarkvörður Norður-Írlands í knattspyrnu sem hefur varið mark Grindavíkur flest tímabil frá árinu 2010, er gengin til liðs við Selfyssinga. Hún kemur þar í staðinn fyrir Chanté Sandiford, landsliðsmarkvörð Guyana, sem hefur leikið með Selfossi í þrjú ár. Emma á að baki 79 landsleiki fyrir Norður-Írland og hefur inn á milli leikið með ensku liðunum Doncaster og Leeds. vs@mbl.is