Katy Perry.
Katy Perry. — AFP
Tónlist Katy Perry hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa kysst ungan strák sem var að taka þátt í prufum fyrir American Idol en hún er dómari í þáttunum.

Tónlist Katy Perry hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa kysst ungan strák sem var að taka þátt í prufum fyrir American Idol en hún er dómari í þáttunum. Benjamin Glaze, sem var 19 ára þegar upptökurnar fóru fram, sagði Perry og hinum dómurunum frá því að hann hefði aldrei kysst stelpu og vildi Perry bæta úr því.

Glaze segir að sér hafi þótt þetta mjög óþægilegt. Hann leggur þó áherslu á að honum finnist hann ekki hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Gagnrýnendur benda á að þetta hefði verið talið algjörlega óviðeigandi ef Perry væri karl og Glaze stúlka.