Sigríður segir steypukjarnann einfalt og fallegt form sem býður upp á ótal möguleika.
Sigríður segir steypukjarnann einfalt og fallegt form sem býður upp á ótal möguleika.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þær Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir og Þórunn Hannesdóttir eru hönnuðirnir á bak við North limited.

Þær Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir og Þórunn Hannesdóttir eru hönnuðirnir á bak við North limited. North limited er þverfaglegt hönnunarteymi þar sem hönnunin er innblásin af íslenskri náttúru og umhverfi og hefur hönnunarteymið unnið markvisst að því að kynna íslenska hönnun á erlendri grundu.

Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir hannar undir vörumerkinu bybibi fyrir North Limited.

Sigríður sýnir vörulínuna Kjarna, umbreytingu hluta, sem er vörulína gerð úr steypukjörnum og náttúrusteinum sem falla til við iðnaðarvinnu. Markmiðið er að taka afgangsefni, vinna það sem minnst en þó til fulls og á einfaldan máta, þannig að það nýtist á sem margvíslegastan hátt.

Kjarna vörulínan er í stanslausri þróun. Leitast er við að nota sama formið en vinna með ólík efni og raða þeim saman í einn heildstæðan hlut til að fá ólík litarblæbrigði. Kertastjakar eru gerðir úr marmara, hrauni, tré, messing, gler og leir.

Salka, sem einnig er til sýnis, er hluti af Family-vörulínu sem hefur verið framleidd úr postulíni um nokkurt skeið og nú er nýr litur kominn í safnið, kóbalt blár. Einfalt og notalegt formið hentar bæði fyrir heita og kalda drykki, eftirrétti eða eitthvað allt annað.

„Steypukjarninn er einfalt og fallegt form sem býður upp á ótal möguleika og út frá honum hafa þessar hugmyndir kviknað sem ég nota á þessari sýningu en markmiðið hefur ávallt verið að hanna einfalda hluti sem hafa margþætt notagildi,“ útskýrir Sigríður spurð hvernig hugmyndin hafi kviknað.

„Verkefnið, umbreyting hluta er í stöðugri þróun en núna er ég að skoða mismunandi nálganir og vinnsluaðferðir, sem eru enn á byrjunarstigi. Ég er mjög ánægð með samstarfið okkar í MUN og hlakka til að vinna áfram úr þeim hugmyndum sem hafa komið upp varðandi rýmið sem við erum með.“

Aðspurð hvað sé mikilvægast við að taka þátt í HönnunarMars segir Sigríður ótalmargt mikilvægt við viðburðinn en trúlega séu það tækifærin sem skapast hjá þátttakendum sem eru mörg og margvísleg.

„HönnunarMars er ekki síður mikilvægur fyrir neytandann þar sem hann getur á einni helgi fengið góða innsýn í hvað er að gerast bæði í hönnun og framleiðslu á Íslandi í dag. Ég tel að HönnunarMars verði sífellt betri með hverju árinu sem líður. Hann er alltaf kærkominn, fullur af góðri orku sem er vel þegin eftir langan vetur.“

Þórunn Hannesdóttir hönnuður sýnir vörumerkið FÆRIÐ fyrir North Limited.

„Ég er að sýna nýjustu línuna af Basalt speglunum mínum. Þetta er önnur línan sem ég hanna fyrir Basalt speglana og í þetta sinn eru speglarnir innblásnir af íslenskum sögum og gerðir úr blágrýti og gleri,“ útskýrir Þórunn en verkin virka sem margbreytilegur nytjaskúlptúr.

Hönnunin á bak við speglana er unnin út frá línu sem kemur út á árinu frá FÆRIÐ.

„Línan er unnin út frá sögum og hugarheiminum sem umkringir íslenskar þjóðsögur af huldufólki og mig langaði að skoða margbreytileg náttúruleg efni fyrir sömu línuna til þess að skapa einskonar upplifun fyrir heimilið. Þannig vinn ég með blágrýti í speglunum og litaða spegla til þess að túlka bergið og dulúðina í sögunum.“

Aðspurð segir Þórunn vörurnar skapaðar til þess að fara á markað og verða þar á meðal til sölu í MUN. „Á næstu mánuðum verða spennandi breytingar í gangi hjá okkur í FÆRID og við munum kynna enn fleiri nýjar vörur á markaðinn svo það verður spennandi að sjá hvernig við þeim verður tekið.“

Þórunn segir jafnframt HönnunarMars einstakan að því leyti að hann er alls ekki eins og aðrar hönnunarvikur úti í heimi. „HönnunarMars er mun aðgengilegri að mínu mati, og þjóðin tekur virkan þátt í hátíðinni. Því er mikilvægt fyrir hönnuði að taka þátt í þessari hátíð og bjóða alla velkomna í umræðuna um íslenska hönnun og nýta tækifærið og gleðjast saman.“