Komnir Fyrstu vagnarnir eru nú þegar komnir til hafnar í Þorlákshöfn.
Komnir Fyrstu vagnarnir eru nú þegar komnir til hafnar í Þorlákshöfn.
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kostnaður við kaup Strætó á fjórtán rafmagnsstrætisvögnum sem væntanlegir eru á næstu mánuðum verður um 850 milljónir kr.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Kostnaður við kaup Strætó á fjórtán rafmagnsstrætisvögnum sem væntanlegir eru á næstu mánuðum verður um 850 milljónir kr. Er þetta 350 milljónum króna lægri fjárhæð en fram kom í svari Strætó sem lagt var fram í borgarráði á fimmtudag.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins spurðust fyrir um kostnað Strætó vegna rafmagnsstrætisvagnanna. Fram kom í svari Strætó að heildarfjárfesting vegna vagnanna væri 1.202 milljónir króna, með virðisaukaskatti. Þegar Morgunblaðið spurðist nánar fyrir kom í ljós að þessar upplýsingar voru rangar, samkvæmt upplýsingum Jóhannesar Svavars Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Strætó, og leiðréttingu komið á framfæri við Reykjavíkurborg.

Byrja að koma í apríl

Kostnaður við vagnakaupin er um 850 milljónir kr. og hleðslustöðvar um 69 milljónir til viðbótar. Við bætist heimtaugargjald fyrir heimtaug í bækistöð samkvæmt gjaldskrá Veitna en sá kostnaður gæti verið nálægt tveimur milljónum kr. Heildarkostnaðurinn er því um 920 milljónir.

Dregist hefur að fá rafmagnsvagnana afhenta vegna galla í hönnun þeirra. Nú er ætlunin að afhenda fjóra fyrstu vagnana um miðjan næsta mánuð, að því er fram kemur í svari Strætó til borgarinnar, fimm til viðbótar í júní og fimm síðustu vagnarnir eiga síðan að koma í lok ágúst.