Sjálfsafgreiðsla í Krónunni Viðskiptavinir skanna vörurnar sjálfir og borga svo fyrir innkaupin með korti.
Sjálfsafgreiðsla í Krónunni Viðskiptavinir skanna vörurnar sjálfir og borga svo fyrir innkaupin með korti. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Krónan tók í fyrradag í notkun fjóra sjálfsafgreiðslukassa í verslun sinni í Nóatúni 17 í Reykjavík. Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, sagði að fleiri Krónuverslanir fylgdu fljótlega í kjölfarið.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Krónan tók í fyrradag í notkun fjóra sjálfsafgreiðslukassa í verslun sinni í Nóatúni 17 í Reykjavík. Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, sagði að fleiri Krónuverslanir fylgdu fljótlega í kjölfarið. Einn mannaður afgreiðslukassi var fjarlægður til að koma fjórum sjálfsafgreiðslukössum fyrir í versluninni. Nú eru þar þrír mannaðir afgreiðslukassar auk sjálfsafgreiðslustöðvanna.

Kristinn sagði að margir viðskiptavinir hefðu afgreitt sig sjálfir vandræðalaust. Starfsmaður er til staðar til að aðstoða þá sem óska og kenna þeim á tæknina. Strikamerki varanna er skannað og vörurnar settar á borð sem er vigt. Vigtin stemmir sig við kassann. Viðskiptavinurinn greiðir svo með debet- eða kreditkorti.

„Næsta búð með sjálfsafgreiðslu kemur um mánaðamótin. Þá opnum við Krónuna á Hvolsvelli. Þar verða bæði sjálfsafgreiðslukassar og venjuleg afgreiðsla,“ sagði Kristinn. Þar á eftir fylgja ný verslun Krónunnar í Garðabæ og verslunin KR Vík í Vík í Mýrdal. KR eru systurverslanir Krónunnar á Suðurlandi. Þær eru með um 2.800 vörunúmer og þar af eru um 2.000 vörur á Krónuverði.

Krónan gerði tilraun með sjálfsafgreiðslu í versluninni við Bíldshöfða fyrir 12 árum. Kristinn sagði að það hefði ekki gengið nægilega vel þá. „Nú er komin önnur tækni og meiri skilningur á þessu. Sjálfsafgreiðsla er orðin svo almenn. Í Bretlandi sérðu nánast bara sjálfsafgreiðslukassa og örfáa þjónustukassa í matvörubúðum. Þetta hjálpar viðskiptavinum að flýta sér við innkaup og er góður kostur fyrir þá,“ sagði Kristinn.