Evrópumeistarar Portúgala steinlágu fyrir Hollendingum, 3:0, þegar þjóðirnar áttust við í vináttuleik sem fram fór í Sviss í gærkvöld.
Evrópumeistarar Portúgala steinlágu fyrir Hollendingum, 3:0, þegar þjóðirnar áttust við í vináttuleik sem fram fór í Sviss í gærkvöld.
Memphis Depay, Ryan Babel og Virgil van Dijk skoruðu mörk Hollendinga í fyrri hálfleik en Portúgalar léku manni færri síðasta hálftíma leiksins eftir að Joao Cancelo var vikið af velli.
Cristiano Ronaldo fór af velli á 68. mínútu í liði Evrópumeistaranna eftir að hafa átt erfitt uppdráttar. Hann verður í eldlínunni með Real Madrid í Las Palmas á laugardagskvöld. sport@mbl.is