Sigmundur Benediktsson gerir nýsamþykkt lög frá alþingi að yrkisefni á Leirnum og segir: „tel ég einboðið að gefa verði út nýtt eyðublað til lögvarðrar fullnustu jákvæðs samþykkis aðila fyrir kynmök“:
Ef að gera ætla það
allt svo jákvætt flæði
skráð og vottað skýrslublað
skrifi undir bæði.
Jón Arnljótsson tekur undir:
Þessum hlýða bókstaf ber
Bragnar vel því merkið:
Þegar skjali þinglýst er,
þá má hefja verkið.
Ólafur Stefánsson var með á nótunum:
Um helgina hugðist' ann reyna,
að hitta og fordjarfa meyna.
Um háttvirt bað svar:
hvenær og hvar,
og hvort að það kæmi til greina?
Síðan fékk Sigmundur eftirþanka: „En málarýni þingheims er nú samt ekki alltaf óskeikul“:
Þingheimur með visku fylltan frama
færði lögskráningu með það sama,
en verkferlarnir verða þrátt til ama,
því velflestum mun hætt að standa' á sama.
Á laugardagskvöldið orti Pétur Stefánsson:
Þurr og leiður þreyi hér,
þungt ég styn af ekka:
Bara ef einhver byði mér
brennivín að drekka.
Og fékk óðara kveðju úr Mývatnssveit frá Friðrik Steingrímssyni:
Langt á milli okkar er
sem erfið reynist glíma,
svo brennivínið býð ég þér
bara í gegnum síma.
Þá kvað Sigmundur Benediktsson:
Öllu sláið upp í grín
óðara þá hittist,
ef þið breytið vatni í vín
vegalengdin styttist.
Enn er ort og sami tónninn sleginn, – Páll Imsland heilsar leirliði í rökkrinu og segir: „Það er þetta með þurrkinn!“:
Þurrt er veður, þurr er sál,
þurr er ég í kverkum.
Þetta' er að verða mæðumál.
Mér bregst allt í verkum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is