Grétar Magnús Grétarsson fæddist í Reykjavík 3. júlí 1974. Hann lést í Kaupmannahöfn 12. mars 2018.
Foreldrar hans eru Bjarney Jónína Friðriksdóttir, f. 26. ágúst 1948, gift Magnúsi Thejll, f. 19. júní 1935, og Grétar Magnús Guðmundsson, f. 14. júlí 1944, giftur Katrínu Svölu Jensdóttur, f. 22. mars 1951.
Systkini Grétars eru Sólveig Jóhanna Grétarsdóttir, f. 4. júlí 1966, maki Hörður Þór Harðarson, f. 12. ágúst 1967, Sóley Dögg Grétarsdóttir f. 27. maí 1972, maki Egill Darri Brynjólfsson, f. 23. maí 1973. Friðrik Sigmundur Grétarsson, f. 27. maí 1972, maki Erla Ragnarsdóttir, f. 30. september 1979, Linda Ösp Grétarsdóttir, f. 1. júní 1987, maki Sveinbjörn Rúnar Magnússon, f. 18. janúar 1987.
Grétar Magnús sleit barnsskónum í Breiðholtinu og bjó í Rjúpufelli lengst af. Þaðan lá leið hans í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann bjó síðustu árin.
Hann hóf skólagöngu sína í Fellaskóla og síðar í Iðnskóla Reykjavíkur þar sem hann lagði stund á grafíska hönnun. Hann starfaði á ýmsum auglýsingastofum við grafíska hönnun í nokkur ár ásamt skiltagerð. Árið 2003 lærði hann dúklagningar sem hann starfaði við um tíma.
Grétar fór í Kvikmyndaskóla Íslands og útskrifaðist árið 2014. Útskriftarmynd Grétars var Sjúkdómarinn sem var valin á kvikmyndahátíðina Stockfish Film Festival og í framhaldi var hún sýnd víða í Bandaríkjunum.
Eftir útskriftina gerði hann heimildarmyndina „Meistari Tarnús og hús“, sem var sýnd á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg 2015.
Grétar fékk styrk frá Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar 2014 fyrir stuttmyndina Sperðill sem sýnd var í Bíó Paradís sama ár.
Grétar Magnús starfaði einnig mikið við tónlist, gaf út tvo geisladiska og var með þann þriðja í bígerð.
Útför Grétars fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 27. mars 2018, klukkan 13.
Þú, Guð míns lífs, ég loka augum
mínum
í líknarmildum föðurörmum þínum
og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu föðurhjarta.
Æ, tak nú, Drottinn, föður og
móður mína
í mildiríka náðarverndan þína,
og ættlið mitt og ættjörð virstu geyma
og engu þínu minnsta barni gleyma.
Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga,
en sér í lagi þau, sem tárin lauga,
og sýndu miskunn öllu því, sem andar,
en einkum því, sem böl og voði
grandar.
Þín líknarásján lýsi dimmum heimi,
þitt ljósið blessað gef í nótt mig
dreymi.
Í Jesú nafni vil ég væran sofa
og vakna snemma þína dýrð að lofa.
(Matthías Jochumsson)
Takk fyrir allt, hjartans barnið mitt. Þú verður alltaf í hjarta mínu, ég elska þig.
Þín
mamma og Magnús.
Ég á svo margar skemmtilegar minningar frá okkar samveru sem ég geymi hjá mér og kem til með að minnast þín með bros á vör. Þó að tíminn nú sé erfiður og sérstaklega fyrir móður okkar og föður þá er lífið eins og það er og minnist ég ánægjulegra samverustunda. En því miður verð ég að horfa á eftir þér í hinsta sinn. Elsku Maggi Mús eða Maggi sæti eins og þú varst oft kallaður, ég minnist þín með söknuði og sorg í hjarta.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(höf. ók.)
Þín systir og „litla mamma“
Sóley Dögg Grétarsdóttir.
Við fáum að kveðja þig í dag, loksins ertu kominn heim aftur og það verður mjög erfitt. Ég skoða enn símann minn og bíð eftir skemmtilegu skilaboðunum þínum sem þú sendir svo oft. Það sem þú gast bullað og grínast endalaust, þetta er geymt á góðum stað í hjarta mínu.
Þú ert staddur í Kaupmannahöfn þegar þú kveður þetta jarðlíf, þitt fallega, góða og stóra hjarta hætti að slá, rúmum sólarhring áður en þú ætlaðir að koma heim.
Þín biðu mörg skemmtileg verkefni sem þú varst svo ánægður og spenntur með að fara að gera. Listsköpun var þín ástríða, hvort sem um var að ræða myndlist, tónlist eða kvikmyndagerð, þarna varstu á heimavelli og blómstraðir.
Maggi, þú varst með risastórt hjarta, og góður fjölskyldunni okkar, alltaf varstu til í að rétta hjálparhönd. Þú ert búinn að hjálpa stóru systur oft, þegar við tókum upp á því að flytja og ég þurfti að brjóta og breyta. Takk fyrir, elsku Maggi.
Síðan ætluðum við saman að gera tennisvöll heima í sumar sem þú hafðir pantað í afmælisgjöf, allt í gríni að sjálfsögðu hjá okkur, en hefði samt verið skemmtilegt verkefni.
Við eigum svo margar skemmtilegar minningar saman systkinin úr Rjúpufellinu sem krakkar, ég er elst og passaði Sóleyju, Frikka og þig . Þú og Frikki að leika slagsmál þar sem við áttum að ná andartakinu á filmu þegar þið voru að falla til jarðar, og svo biðuð þið eftir framkölluninni til að sjá árangurinn, við gátum endalaust brallað eitthvað saman og hlegið og rifist eins og stórum systkinahóp sæmir.
En lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá þér, elsku Maggi, þú áttir einn óvin og það var fíknin, sem fór oft illa með líf þitt. Þú varst búinn að vera edrú í meira en eitt ár núna þegar þú féllst í Kaupmannahöfn sem varð sennilega til þess að hjarta þitt gafst upp.
Þig langaði svo mikið að komast út úr þessari fíkn og stofna fjölskyldu, þú sagðir á gamlárskvöld núna síðast að þú ætlaðir að koma með fullt af börnum, helst þríbura. Góður varstu við mömmu, Magga Thejll og pabba sem og frændsystkinin þín, og hafðir mjög gaman af börnum.
Elsku hjartans litli bróðir sem kveður okkur allt of ungur, ég á eftir að sakna þín á hverjum degi, takk fyrir alla þá gleði og væntumþykju sem þú áttir og gafst okkur.
Megi guð gefa okkur styrk á þessari erfiðu stundu, núna þegar við kveðjum þig.
Hvíldu í friði, elsku Maggi minn, og megi englar alheimsins vaka yfir þér.
Sorgin er gríma gleðinnar.
Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af tárum.
Og hvernig ætti það öðruvísi að vera?
Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað.
(Úr Spámanninum e. Khalil Gibran)
Þín stóra systir,
Sólveig Grétarsdóttir.
Ég á eftir að sakna hans Magga á jólunum. Hann var svo oft hjá okkur og gerði í raun jólin að enn meira tilhlökkunarefni en þau eru nú þegar. Hann hafði í för með sér einhvern óútskýranlegan jólaanda. Kannski var það það að maður þurfti að fullvissa hann um að það væru ekki sveppir í sósunni, annars prumpaði hann allt kvöldið. Kannski voru það gjafirnar sem hann gaf, mispraktískar, en allar minna þær mann á Magga. Gjöfunum var alltaf pakkað inn í dagblöð, helst með stórri mynd af Sigmundi Davíð ofan á, og gjafirnar voru vægast sagt frumlegar. Eftirminnilegasta jólagjöfin, og sú sem mér þykir vænst um, er sjálfsmynd sem hann teiknaði af sér og gaf mömmu. Hann sagðist ekki hafa tíma til að klára hárið, þannig hann notaði klipptu hárin úr jólaklippingunni og límdi þau á myndina.
Magga fannst lögin í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár frekar óspennandi og eftir smá spjall um lögin núna í febrúar ákváðum við að við skyldum senda lag inn á næsta ári. Ég fel mér það verkefni að klára lagið með þann litla grunn sem við ákváðum í minningu hans. Ég hugsa til þín á hverjum degi, elsku besti frændi minn. Hvíldu í friði, ég sé þig hinum megin, elska þig.
Hákon Darri Egilsson.
Við kynntumst stuttlega í sumarstarfi hjá Vatnsveitunni í gamla daga en leiðir okkar áttu eftir að liggja saman með öðrum og skemmtilegri hætti nokkrum árum seinna þegar ég kynntist systur þinni. Síðan þá hefur þú verið skemmtilegi og uppátækjasami frændinn sem kom sífellt á óvart með óvæntum uppákomum. Ég minnist þess sérstaklega að hafa fengið krukku merkta DNA í jólagjöf. Sem betur fer var hún full af hári en ekki einhverju öðru. Ég þykist líka vita að þú hafir staðið á bak við það á einn eða annan hátt að fá þá félaga Geir Ólafsson og Herbert Guðmundsson til að syngja í brúðkaupi okkar systur þinnar. Þá var nú kátt á hjalla.
Hugmyndaauðgi var aldrei vandamál hjá þér og listhneigður varstu með afbrigðum. Allt sem viðkom listum lék í höndum þér, myndlist, tónlist og kvikmyndagerð. Við þá iðju undir þú þér best og þar fannstu þína ró. Það er gott til þess að hugsa að þú hafir skilið alla þessa list eftir þig og að þú hafir hlotið þó nokkra viðurkenningu fyrir þín verk. Það var gaman að fylgjast með þér fara í gegnum kvikmyndaskólann og mér fannst sérstaklega gaman þegar þú varst að spyrja mig álits á hinum og þessum verkefnum sem þú varst að gera í tengslum við skólann, áhuginn og metnaðurinn var augljós. Reyndar varstu áhugasamur um allt, þú varst mjög forvitinn um heiminn í kringum þig og sást yfirleitt spaugilegu hliðarnar á honum. Pælingarnar sem ultu upp úr þér voru oft á tíðum óborganlegar og komu viðstöddum til að hlæja.
Þú varst líka alltaf boðinn og búinn að hjálpa og aldrei fór maður til þín bónleiður til búðar. Hvort sem það var að hjálpa til við flutninga eða meira krefjandi verk eins og að flota háaloftið eða að teppaleggja stigaholið.
Þegar ég hugsa um þig á ég erfitt með að ímynda mér betri manneskju. Auðvitað áttir þú þinn djöful að draga eins og við öll en góðmennskan, hjálpsemin og skemmtilegheitin gerðu það að verkum að ég er mjög þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og að hafa þekkt þig rúmlega hálfa ævina og ég veit að systir þín og börnin okkar eru sama sinnis. Elsku kallinn minn, mikið er erfitt að sjá á eftir þér og að geta ekki reitt sig á óstöðvandi hláturinn til að létta manni lífið, ég vona bara að þú sért á góðum stað, þú ert að minnsta kosti í hjarta mínu.
Egill Darri Brynjólfsson.