Eva Hagsten er með bakkalárpróf í hagfræði og tölfræði og meistarapróf í hagfræði frá Örebro-háskóla. Eva er með mikla reynslu af greiningavinnu, m.a.
Eva Hagsten er með bakkalárpróf í hagfræði og tölfræði og meistarapróf í hagfræði frá Örebro-háskóla. Eva er með mikla reynslu af greiningavinnu, m.a. fyrir ýmsar rannsóknarstofnanir, hagstofu Svíþjóðar (SCB), framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD). Hún vinnur hjá hagvaxtarstofnuninni Tillväxtverket auk þess sem hún mun halda áfram rannsóknasamstarfi með dr. Helga Tómassyni.

Eva Hagsten hefur varið doktorsritgerð sína í hagfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið „Ýmis gervi upplýsinga- og samskiptatækni í frammistöðumælingum evrópskra fyrirtækja“ („The various guises of ICT in firm performance across Europe“).

Andmælendur voru Mary O'Mahony, prófessor við King's College London, og Sverre A.C. Kittelsen, forstöðumaður Frischsenter í Osló.

Leiðbeinandi var dr. Helgi Tómasson, prófessor í hagrannsóknum og tölfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands. Í doktorsnefnd sátu auk hans dr. Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands, og dr. Martin Falk hjá Austrian Institute of Economic Research.

Upplýsinga- og samskiptatækni (UST) gegnir enn mikilvægu hlutverki í starfi fyrirtækja innan Evrópu. Hins vegar er munur á hversu reiðubúin fyrirtæki eru til að nýta sér og innleiða hraða þróun tækninnar sem gefur til kynna að birtingarmyndir UST eru mismunandi þegar kemur að frammistöðu.

Í nútímahagkerfi hefur UST áhrif á flest svið einka- og viðskiptalífs. Það er hins vegar ekki skýrt hvernig fyrirtæki velja að nota tæknina eða hvernig þau njóta góðs af henni. Sérstaklega er alþjóðlegur samanburður erfiður og varasamur. Fræðimenn hafa átt erfitt með að finna haldgóðar vísbendingar um hvernig greina mætti jákvæð áhrif fjárfestinga í UST. Hluti af skýringunni er hugsanlega skortur á gögnum eða vegna lélegra gagna. Síðar hafa lausnir á sumum vandamálum þessu tengdum verið fundnar með því að skoða frammistöðumælikvarða fyrirtækja í einstökum atvinnugreinum í einstökum löndum.

Opinber gögn eins og þau eru birt hjá evrópskum hagstofum henta ekki vel í alþjóðlegum samanburði. Rannsóknir Evu byggðust á að vinna sérhæfða samanburðarhæfa gagnagrunna upp úr opinberum hagstofugögnum. Ályktanir eru byggðar á sérhæfðum tölfræðilíkönum.

Höf.: Eva Hagsten