Í framboði Frambjóðendurnir í efstu sætum á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Í framboði Frambjóðendurnir í efstu sætum á lista Framsóknarflokksins í Kópavogi.
Birkir Jón Jónsson bæjarfulltrúi leiðir framboðslista Framsóknarflokks í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Framboðslistinn var samþykktur einróma á fundi fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í síðustu viku.

Birkir Jón Jónsson bæjarfulltrúi leiðir framboðslista Framsóknarflokks í sveitarstjórnarkosningunum í maí.

Framboðslistinn var samþykktur einróma á fundi fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í síðustu viku.

Í næstu sætum eru Helga Hauksdóttir lögfræðingur, Baldur Þór Baldvinsson, formaður FEBK, Kristín Hermannsdóttir, nemi og tamningakona, Sverrir Kári Karlsson verkfræðingur, Helga María Hallgrímsdóttir sérkennari, Gunnar Sær Ragnarsson háskólanemi, Björg Baldursdóttir skólastjóri, Hjörtur Sveinsson rafvirki og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir kennari.