Sara Dögg Svanhildardóttir
Sara Dögg Svanhildardóttir
Sara Dögg Svanhildardóttir skólastjóri er oddiviti Garðabæjarlistans, sem er nýtt framboð í bæjarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Sara Dögg Svanhildardóttir skólastjóri er oddiviti Garðabæjarlistans, sem er nýtt framboð í bæjarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í næstu sætum eru Ingvar Arnarson framhaldsskólakennari, Harpa Þorsteinsdóttir lýðheilsufræðingur, Halldór Jörgensson tölvunarfræðingur og Valborg Ösp Á. Warén stjórnmálafræðingur.

Í tilkynningu segir að Garðabæjarlistinn leggi áherslu á velferð og menntun barna og ungmenna, atvinnutækifæri starfandi kynslóða, lýðheilsu ungra sem eldri og gæði nærsamfélagsins.