[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.

Handbolti

Ívar Benediktsson

iben@mbl.is

„Það var þungu fargi létt af mér,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar handboltafélags, þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær og spurði út í liðanina eftir að lið hans tryggði sér sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Akureyri innsiglaði sigur og efsta sæti næst efstu deildar, Grill 66-deildarinnar, með sigri á HK í Höllinni á Akureyri á föstudagskvöldið, 26:20.

Akureyri handboltafélag féll úr Olísdeildinni fyrir ári og í framhaldinu ákvað KA, sem var annar angi liðsins, að hætta samstarfinu við Þór um Akureyrarliðið. KA hóf á ný eigin útgerð með meistaraflokkslið í karlaflokki. Þeir sem voru á annarri skoðun en KA-menn ákváðu að halda ótrauðir áfram keppni undir merkjum Akureyrar handboltafélags. Þegar upp var staðið á föstudagskvöldið hafnaði Akureyri í efsta sæti en KA í öðru sæti og fer í umspil ásamt þremur öðrum liðum um eitt laust sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.

Framan af leiktíðinni var Akureyrarliðið í öðru sæti en hélt uppi dampi eftir áramótin og fékk 15 af 16 stigum mögulegum í síðustu átta leikjunum eftir áramót. Sigur á heimavelli á móti KA og á útivelli gegn ungmennaliði Hauka skiptu nánast sköpum. „Eftir þetta var það í okkar höndum að halda efsta sætinu með tveggja til þriggja stiga forskot á næsta lið. Þessi staðreynd hélt okkur við efnið allt til loka,“ sagði Sverre og viðurkenndi að í lokaleiknum við HK á föstudaginn í Höllinni á Akureyri hefðu menn lítið oft á leikklukkuna, oftar en venjulega að minnsta kosti.

Fundum styrkinn þegar á leið

„Það var alltaf markmiðið að endurheimta sæti í deildinni þrátt fyrir það sem á undan var gengið. Við vorum hinsvegar ekkert vissir um að við værum með lið til þess að vinna deildina. Þegar á keppnistímabilið leið þá fundum við að það var nægur styrkur í liðinu til þess að ná efsta sætinu. Ég er mjög ánægður með að okkur tókst að halda dampi til loka. Ég er viss um að við áttum sigurinn skilið,“ sagði Sverre sem ákvað í umbrotunum fyrir ári að standa við sinn samning og þjálfa Akureyrarliðið þrátt fyrir að óljóst væri hvaða leikmönnum hann hefði úr að spila. Nokkrir leikmenn þáverandi Akureyrarliðs fóru í KA og aðrir fluttu suður til náms.

„Þegar ég skrifaði undir samning þess efnis að halda áfram að þjálfa Akureyarliðið lá ekki skýrt fyrir hvaða leikmenn myndu skipa liðið þegar æfingar hæfust um sumarið. Þegar frá leið skýrðist hvaða leikmenn ætluðu að vera um kyrrt og þá var unnið út frá því. Ég er bara þakklátur þeim fyrir að hafa gefið kost á sér á að vera áfram og halda í þessa vegferð með mér sem keppnistímabilið hefur verið,“ sagði Sverre og bætti við.

„Menn náðu fljótt vel saman. Við ýttum öllum ríg eða sundrungu frá okkur og einbeittum okkur að því sem skipti máli sem var að búa til handboltalið. Vinnan hófst og uppskeran liggur nú fyrir. Veturinn hefur verið afar skemmtilegur að mörgu leyti,“ sagði Sverre sem hefur haft fyrrverandi samherja og fóstbróður úr vörn landsliðsins, Ingimund Ingimundarson, sér við hlið við þjálfunina.

„Ég reikna með að verða áfram þjálfari Akureyrarliðsins. Ég hef ekki gengið frá einu né neinu í þeim efnum ennþá en hef rætt við forráðamenn félagsins og sé ekki fram á annað en að halda áfram mínu starfi. Vonandi verður formlega gengið frá samkomulagi á næstu dögum,“ sagði Sverre.

Byrjað að skipuleggja næsta tímabil

Sverre segir menn vera byrjaða að velta næstu leiktíð fyrir sér. Þrír leikmenn Akureyrar þurfa að gangast undir smáaðgerðir vegna meiðsla. Þar sem keppnistímabilinu sé lokið sé lögð áhersla á að þeir komist sem fyrst undir læknishendur svo þeir verði klárir í slaginn þegar æfingar fyrir næstu leiktíð hefjast. Eins þarf að kanna möguleika á styrkingu liðsins.

„Stjórnin er að vinna í sínum málum varðandi styrktarsamninga og við að þreifa fyrir okkur með að fá leikmenn til okkar. Við þurfum ekki marga leikmenn en réttu mennina. Meðal annars þurfum við að fá meiri reynslu í hópinn sem er að mestu skipaður ungum leikmönnum,“ sagði Sverre sem leggur áherslu á að liðið verði áfram að mestu byggt upp á heimamönnum. „Við erum með fjölmennan hóp af yngri leikmönnum, meðal annars í ungmennaliði okkar, sem geta vel komið inn í aðalliðið á næstu tveimur árum. Við erum að minnsta kosti bjartsýnir um þessar mundir,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson, þjálfari Akureyrar handboltafélags.