Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck
Lærisveinar Lars Lagerbäck í norska karlalandsliðinu í knattspyrnu fögnuðu í gær 1:0 sigri á Albönum í vináttulandsleik í Elbesan í Albaníu. Sigurd Rosted, leikmaður belgíska liðsins Gent, skoraði sigurmarkið á 70.

Lærisveinar Lars Lagerbäck í norska karlalandsliðinu í knattspyrnu fögnuðu í gær 1:0 sigri á Albönum í vináttulandsleik í Elbesan í Albaníu.

Sigurd Rosted, leikmaður belgíska liðsins Gent, skoraði sigurmarkið á 70. mínútu leiksins en þetta var hans fyrsti landsleikur. Rosted kom inná á 62. mínútu og hann var ekki lengi að stimpla sig inn.

Þetta var annar sigur Norðmanna á fjórum dögum en þeir unnu öruggan 4:1 sigur gegn Áströlum á föstudagskvöldið.