[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hátt í 2.000 manns tóku þátt í páskaeggjaleit K100 á svæðinu við Hádegismóa síðastliðinn sunnudag. Mikil gleði var á svæðinu og hafði 850 páskaungum verið komið fyrir í nágrenni Morgunblaðshússins.
Hátt í 2.000 manns tóku þátt í páskaeggjaleit K100 á svæðinu við Hádegismóa síðastliðinn sunnudag. Mikil gleði var á svæðinu og hafði 850 páskaungum verið komið fyrir í nágrenni Morgunblaðshússins. Páskaeggjaleitin var fyrst haldin í fyrra en þá mættu um 700 manns. Það kom því starfsfólki K100 skemmtilega á óvart að sjá um þrefalt fleiri taka þátt í ár. Á k100.is geturðu séð magnað myndband frá þessum skemmtilega viðburði með myndefni sem Sighvatur Jónsson og Kristinn Magnússon tóku.