Fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir stendur í 21. sinn fyrir tónlistarhátíðinni Músík í Mývatnssveit um bænadagana. Fyrri tónleikarnir verða í félagsheimilinu Skjólbrekku á skírdag kl. 20 og þeir seinni í Reykjahlíðarkirkju föstudaginn langa kl. 20.
Fiðluleikarinn Laufey Sigurðardóttir stendur í 21. sinn fyrir tónlistarhátíðinni Músík í Mývatnssveit um bænadagana. Fyrri tónleikarnir verða í félagsheimilinu Skjólbrekku á skírdag kl. 20 og þeir seinni í Reykjahlíðarkirkju föstudaginn langa kl. 20. Með Laufeyju koma fram Eivør Pálsdóttir, Tróndur, Elísabet Waage og Hávarður Tryggvason.