Prince Roger Nelson heitinn
Prince Roger Nelson heitinn
Krufning á líki tónlistarmannsins Prince og eiturefnarannsókn leiddu í ljós að hann var með alltof mikið af fentanýli í líkamanum þegar hann lést. Prince var 57 ára þegar hann fannst látinn í lyftu á heimili sínu árið 2016.
Krufning á líki tónlistarmannsins Prince og eiturefnarannsókn leiddu í ljós að hann var með alltof mikið af fentanýli í líkamanum þegar hann lést. Prince var 57 ára þegar hann fannst látinn í lyftu á heimili sínu árið 2016. Nokkrum vikum síðar var tilkynnt að hann hefði látist af of stórum skammti af fentanýli sem er sterkt verkjalyf, skylt morfíni. Nú hefur komið í ljós að magn fentanýls í lifur Prince var 450 míkrógrömm á kíló en 69 míkrógrömm á kíló þykja benda til þess að of stór skammtur hafi verið tekinn og slíkt magn getur verið banvænt.