Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Árleg gjörningahátíð verður haldin í fimmta sinn á morgun, föstudaginn langa, í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Á undanförnum árum hefur fjöldi gesta lagt leið sína til Siglufjarðar á hátíðina að fylgjast með gjörningum misþekktra listamanna á ólíkum aldri en meðal þeirra sem tekið hafa þátt í hátíðinni má nefna Magnús Pálsson, Örnu Guðnýju Valsdóttur, Arnljót Sigurðsson og Gjörningaklúbbinn.
Eins og fyrri ár verður samtímis opnuð ný sýning í Kompunni í Alþýðuhúsinu og stendur hún næstu vikurnar. Að þessu sinni er það sýning Karlottu Blöndal og kallar hún hana „Nýjar teikningar fyrir Alþýðuhúsið“.
Dagskráin hefst kl. 14 með opnun sýningar Karlottu. Kl. 15 er gjörningur Magnúsar Loga Kristinssonar, „Homage to 7 Masters“. Magnús, sem er búsettur í Finnlandi, sýndi verkið fyrst á Reina Sofia-safninu kunna í Madrid.
Líkami og orð eru sögð umbreytast í hlutgerð form í gjörningnum, þar sem regluleg hrynjandi í upplestri margbreytilegra lista gerir textann bæði að konkret ljóði og tónlist, og á sama tíma er hugmynd um líkamlega nærveru ögrað með nánast algerri kyrrstöðu.
Kl. 15.40 verður gjörningur dönsku listamannanna Mads Hvidkjær Binderup, Sonju Ferdinand og Önnu Oline Frieboe Laumark, „REM“. Í samnefndri hljóðmynd er myndmál drauma útgangspunktur skoðunar á ástandinu „draumur“ sem svörun við umheiminum. Áhorfendum er boðið í umvefjandi ferðalag, þar sem brot úr persónulegum draumum umbreytast í sameiginlega upplifun.
Eftir kaffihlé lýkur dagskránni með „Blóðsól“, verki Haraldar Jónssonar og Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur. Því er lýst sem tilraun til að varpa ljósi á róf athafna, orða og mynda í tilbúnum aðstæðum. „„Blóðsól“ lýsir upp síkvikar væntingar mannsins þar sem þátttakendur eru í senn áhorfendur, viðfangsefni og hvorugt,“ segir í tilkynningu og að listamennirnir beiti ýmsum miðlum í listsköpun sinni og eigi það sameiginlegt að vinna á mörkum myndar og tungu þar sem þau vefa oftar en ekki verk sín úr andrúmslofti staðhátta.
Gjörningar sýnilegri
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, myndlistarkona og staðarhaldari í Alþýðuhúsinu, hóf að halda gjörningahátíðina á föstudaginn langa fyrir fimm árum, á helgum degi þegar áður fyrr mátti vart hreyfa sig.„Ég hef alltaf haft gaman af því að gera eitthvað sem má ekki gera,“ segir Aðalheiðir og hlær.
„Þegar ég byrjaði með gjörningahátíðina var ekki mikið um gjörninga fyrir norðan. Síðar byrjaði Listasafnið á Akureyri með gjörningahátíðina A, sem er á haustin, svo núna eru tvær gjörningahátíðir á svæðinu. Einstaklingar eins og Anna Ríkharðsdóttir hafa gert gjörninga hér fyrir norðan en mér fannst, þegar ég byrjaði á þessu, að þetta listform mætti vera sýnilegra hér. Og ég vildi búa til vettvang fyrir þá listamenn hér á svæðinu sem fást við gjörningaformið. En ég hef líka þurft að leita út fyrir svæðið og nú koma fram listamenn frá Reykjavík, Finnlandi og Danmörku. Maður færir út kvíarnar...
Ég reyni að setja upp skemmtilega og góða dagskrá,“ segir hún.
Fullt hús og gaman
Aðalheiður segir að á fyrri gjörningahátíðum hafi verið mikill fögnuður og gleði í Alþýðuhúsinu. „Föstudagurinn langi er tilvalinn til þess að efna til svona andans upplyftingar, enda er fólk yfirleitt að leita að afþreyingu og einhverju að gera á þessum degi. Margir leggja leið sína til Siglufjarðar á þessum tíma, sumir á skíði, aðrir eiga hér hús og koma með gesti, og svo kemur fólk úr nærsveitum sérstaklega á hátíðina; frá Sauðarkróki, Akureyri, og sumir frá Reykjavík.Á hverju ári gera sífellt fleiri sér ferð á hátíðina og það er ánægjulegt – það hefur í raun alltaf verið fullt hús og ægilega gaman.
Þegar skapandi fólki er stefnt saman með þessum hætti verður oft til ægilega fín dýnamík,“ segir hún.
Magnús Logi kemur sérstaklega frá Finnlandi til að koma fram á hátíðinni og sama má segja um dönsku listamennina; þau hafa nýtekið sín fyrstu skref á þessu sviði og eru að fara á ferð um Norðurlöndin að troða upp með gjörninga.
„Það er gaman að listamennirnir skuli vilja leggja leið sína til Siglufjarðar til að fremja sína gjörninga. Ég er ótrúlega þakklát fyrir það, og spennt að sjá,“ segir Aðalheiður.