Fjarðabyggð Stærstur hluti frambjóðenda á Fjarðalistanum í kosningunum í vor.
Fjarðabyggð Stærstur hluti frambjóðenda á Fjarðalistanum í kosningunum í vor.
Fjarðalistinn, L-listi félagshyggjufólks í Fjarðabyggð, var samþykktur á opnum félagsfundi í vikunni. Á listanum eiga sæti átta konur og tíu karlar.
Fjarðalistinn, L-listi félagshyggjufólks í Fjarðabyggð, var samþykktur á opnum félagsfundi í vikunni. Á listanum eiga sæti átta konur og tíu karlar. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi L-listans, er í fyrsta sæti og Sigurður Ólafsson, verkefnastjóri hjá SVN, er í öðru sæti. Næst á eftir þeim koma Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir umsjónarkennari og Einar Már Sigurðarson skólastjóri.