Vefsíðan Flestir frumkvöðlar kannast við þann vanda að öll bestu lénin virðast þegar frátekin. Er agalega svekkjandi að vera með hugmynd að góðri vöru og þrælgott nafn sem hæfir vörunni, en reka sig svo á að .com-lénið er ekki laust.

Vefsíðan

Flestir frumkvöðlar kannast við þann vanda að öll bestu lénin virðast þegar frátekin. Er agalega svekkjandi að vera með hugmynd að góðri vöru og þrælgott nafn sem hæfir vörunni, en reka sig svo á að .com-lénið er ekki laust.

Er þá erfitt að segja hvort er verra: að annað fyrirtæki, með sama nafn, hafi lagt lénið undir sig, eða þá að spákaupmaður hafi tryggt sér lénið og bjóði það til sölu fyrir fúlgur fjár.

Þeir sem ekki eiga sand af seðlum til að kaupa lén af bröskurum ættu að prufa þjónustu vefsíðunnar DomainWatch (http://domainwatch.me) sem, eins og nafnið gefur til kynna, vaktar hvenær skráning léna rennur út svo að nýr kaupandi geti tekið við þeim.

Með DomainWatch er hægt að vakta eitt lén ókeypis, eða borga mánaðaráskrift til að vakta fleiri lén. Kostar hver vöktun tvo dali á mánuði, og því hægt að fylgjast með allt að 25 lénum gegn 50 dala áskriftargjaldi mánaðarlega. ai@mbl.is