Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Átta liða úrslitunum í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu lauk í gærkvöld þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar hennar í Wolfsburg komust í undanúrslitin ásamt ríkjandi Evrópumeisturum Lyon, Manchester City og Chelsea.

Átta liða úrslitunum í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu lauk í gærkvöld þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar hennar í Wolfsburg komust í undanúrslitin ásamt ríkjandi Evrópumeisturum Lyon, Manchester City og Chelsea.Wolfsburg gerði jafntefli við Slavia Prag í gær, 1:1, en komst örugglega áfram þar sem liðið vann fyrri leikinn, 5:0.

Í undanúrslitunum mætast:

Wolfsburg - Chelsea.

Lyon - Manchester City.

Evrópumeistararnir í Lyon unnu í gærkvöld 1:0 sigur á Barcelona og samanlagt, 3:1, og Chelsea vann 3:1 sigur á móti Montpellier og samanlagt, 5:1.

María Þórisdóttir lék allan tímann með Chelsea í kvöld. Hún er leikmaður norska kvennalandsliðsins og er dóttir Þóris Hergeirssonar þjálfara norska kvennalandsliðsins í handknattleik. sport@mbl.is